Gamla testamentiðSpámennirnir
Upp lúk dyrum þínum, Líbanon, til þess að eldur geti eytt sedrustrjám þínum.
Kveina þú, kýprestré, yfir því að sedrustréð er fallið; kveinið þér, Basans eikur, yfir því að hinn þykki skógurinn liggur við velli.
Heyr, hversu hirðarnir kveina, af því að prýði þeirra er eyðilögð; heyr, hversu ungljónin öskra, af því að vegsemd Jórdanar er eydd.
Svo sagði Drottinn, Guð minn: Hald til haga skurðarsauðunum,
er kaupendur þeirra slátra, án þess að taka gjöld fyrir, og seljendur þeirra segja: Lofaður sé Drottinn, nú er eg orðinn ríkur! og hirðar þeirra vægja þeim ekki.
Því að nú vil eg ekki framar vægja íbúum landsins, segir Drottinn. Heldur framsel eg nú sjálfur mennina, hvern í hendur hirði sínum og í hendur konungi sínum; þeir munu eyða landið og eg mun engan frelsa undan valdi þeirra.
Þá hélt eg til haga skurðarsauðunum fyrir fjárkaupmennina og tók eg mér tvo stafi; kallaði eg annan þeirra Hylli og hinn Sameining. Gætti eg nú fjárins
og afmáði þrjá hirða á einum mánuði; varð eg leiður á þeim og þeir höfðu einnig óbeit á mér.
Þá sagði eg: Eg vil ekki gæta yðar; deyi það, sem deyja vill, farist það, sem farast vill, og það, sem þá verður eftir, eti hvað annað upp.
Síðan tók eg staf minn Hylli og braut í sundur, til þess að bregða þeim sáttmála, sem eg hafði gjört við allar þjóðir.
En er honum var brugðið á þeim degi, þá könnuðust fjárkaupmennirnir við, þeir er gáfu mér gaum, að þetta var orð Drottins.
Þá sagði eg við þá: Ef yður þóknast, þá greiðið mér kaup mitt, en að öðrum kosti látið það vera! Þá vógu þeir mér þrjátíu sikla silfurs í kaup mitt.
En Drottinn sagði við mig: Kasta þú því í fjárhirzluna, hinu dýra verðinu, er þú varst metinn af þeim! Og eg tók þá þrjátíu sikla silfurs og kastaði þeim í fjárhirzluna í musteri Drottins.
Síðan braut eg sundur hinn stafinn, Sameining, til þess að bregða upp bræðralaginu milli Júda og Ísrael.
Því næst sagði Drottinn við mig: Tak þér enn verkfæri heimsks hirðis;
því að sjá, eg ætla sjálfur að láta hirði rísa upp í landinu, sem vitjar ekki þess, sem er að farast, leitar ekki þess, sem vilst hefir, græðir ekki hið limlesta, annast ekki hið heilbrigða, heldur etur kjötið af feitu skepnunum og rífur klaufirnar af þeim.
Vei hinum ónýta hirði, sem yfirgefur sauðina. Glötun komi yfir armlegg hans og yfir hægra auga hans! Armleggur hans visni gjörsamlega og hægra auga hans verði steinblint.