Sakaríabók 12Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Sakaríabók 12

Spádómur. Orð Drottins um Ísrael, guðmæli Drottins, sem útþandi himininn, grundvallaði jörðina og myndaði andann í brjósti mannsins.

Sjá, eg gjöri Jerúsalem að vímuskál fyrir allar þjóðirnar, sem umhverfis hana eru; jafnvel Júda mun vera með í umsátinni um Jerúsalem.

Á þeim degi mun eg gjöra Jerúsalem að aflraunasteini fyrir allar þjóðir; hver sá, er hefir hann upp, mun hrufla sig til blóðs, og allar þjóðir jarðarinnar munu safnast gegn henni.

Á þeim degi, segir Drottinn, mun eg slá felmt á alla hesta og vitfirring á þá, sem ríða þeim. Á Júda húsi vil eg hafa vakandi auga, en slá alla hesta þjóðanna með blindu.

Þá munu ætthöfðingjar Júda segja með sjálfum sér: Styrkur er Jerúsalembúum í Drottni hersveitanna, Guði sínum.

Á þeim degi mun eg gjöra ætthöfðingja Júda eins og glóðarker í viðarkesti og sem brennandi blys í kerfum, og þeir munu eyða til hægri og til vinstri öllum þjóðum umhverfis, en Jerúsalem mun verða kyr á sínum stað, eins og áður.

Fyrst mun Drottinn frelsa tjöld Júda, til þess að frægð Davíðs húss og frægð Jerúsalembúa verði ekki meiri en Júda.

Á þeim degi mun Drottinn halda hlífiskildi yfir Jerúsalembúum, og hinn máttfarni meðal þeirra mun á þeim degi vera eins og Davíð og Davíðs hús eins og Guð, eins og engill Drottins á undan þeim.

Og á þeim degi mun eg leitast við að eyða öllum þjóðunum, er fóru í móti Jerúsalem.

En yfir Davíðs hús og yfir Jerúsalembúa úthelli eg líknar- og bænaranda, og þeir munu líta til hans, sem þeir lögðu í gegn, og harma hann eins og menn harma lát einkasonar, og syrgja hann eins og menn syrgja frumgetinn son.

Á þeim degi mun eins mikið harmakvein verða í Jerúsalem eins og Hadadrimmon-harmakveinið í Megiddó-dal.

Landið mun kveina, hver kynþáttur fyrir sig: kynþáttur Davíðs húss fyrir sig og konur þeirra fyrir sig; kynþáttur Natans húss fyrir sig og konur þeirra fyrir sig;

kynþáttur Leví húss fyrir sig og konur þeirra fyrir sig; kynþáttur Símeíta fyrir sig og konur þeirra fyrir sig,

og eins allir hinir kynþættirnir, sem eftir eru, hver kynþáttur fyrir sig og konur þeirra fyrir sig.