Gamla testamentiðSaga
En Noomí átti þar frænda manns síns, ríkan mann af ætt Elímeleks, og hét hann Bóas.
Og Bul hin inóahítíska sagði við Noomí: Eg ætla að fara út á akurinn og tína upp öx á eftir einhverjum þeim, er kann að sýna mér velvild. Og hún svaraði henni: Far, þú, dóttir mín!
Og hún fór og kom og tíndi á akrinum á eftirkornskurðarmönnunum, og henni vildi svo vel til, að leig þennan átti Bóas, sem var í ætt við Elímelek.
Og sjá, Bóas kom frá Betlehem og sagði við kornskurðarmennina: Drottinn sé með yður! Þeir svöruðu: Drottinn blessi þig!
Og Bóas mælti við þjón sinn, sem settur var yfir kornskurðarmennina: Hverjum heyrir þessi stúlka til?
Og þjónninn, sem settur var yfir kornskurðarmennina, svaraði og sagði: Það er móabitísk stúlka, sú sem kom aftur með Noomií frá Móabslandi.
Hún sagði: Leyf mér að tína upp og safna saman meðal bundinanna á eftir kornskurðarmönnunum! Og hún kom og hefir verið að frá því í morgun og þangað til nú og hefir ekki gefið sér neinn tíma til að hvíla sig.
Þá sagði Bóas við Rut: Heyr þú, dóttir mín! far þú ekki á annan akur, til þess að tína, og far þú heldur ekki héðan, en haltu þig hér hjá stúlkum mínum.
Gef þú gætur að þeim akri, þar sem þeir skera upp, og gakk þú á eftir þeim; eg hefi boðið piltunum, að amast ekki við þér. Og ef þig þyrstir, þá gakk að ílátunum og drekk af því, sem piltarnir ausa.
Þá féll hún fram á ásjónu sína og laut niður að jörðu og sagði við hann: Hvers vegna sýnir þú mér þá velvild, að víkja mér góðu, þar sem eg þó er útlendingur?
Bóas svaraði og sagði við hana: Mér hefir verið sagt alt afþví, hvernig þér hefir farist við tengdamóður þína eftir dauða manns þíns, og að þú hefir yfirgefið föður þinn og móður og ættland þitt og farið til fólks, sem þú þektir ekki áður.
Drottinn umbuni verk þitt, og laun þín verði fullkomin af Drottni, Ísraels Guði, þar sem þú ert komin að leita skjóls undir vængjum hans.
Og hún sagði: Ó, að eg mætti finna náð í augum þínum, herra minn; því að þú hefir huggað mig og talað vinsamlega við ambátt þína, og er eg þó ekki einu sinni jafningi ambátta þinna.
Og er matmálstími kom, sagði Bóas við hana: Kom þú hingað og et af brauðinu og dýf bita þínum í ediksblönduna. Þá settist hún hjá kornskurðarmönnunum, og hann rétti henni bakað korn, og hún át sig sadda og leifði.
Síðan stóð hún upp og fór að tína. Þá lagði Bóas svo fyrir pilta sína: Hún má einnig tína millum bundinanna, og gjörið henni ekkert mein;
og dragið jafnvel öx út úr hnippunum handa henni og látið eftir liggja, svo að hún megi tína, og eigi skuluð þér atyrða hana.
Síðan tíndi hún á akrinum alt til kvelds; og er hún barði kornið Úr því, er hún hafði tínt, þá var það hér um bil efa af byggi.
Og bú? tók það og fór inn í borgina, og sá tengdamóðir hennar, hvað hún hafði tínt; því næst tók hún fram það, er hún hafði leift, þá er hún var södd orðin, og fékk henni.
Þá sagði tengdamóðir hennar við hana: Hvar hefir þú tínt í dag og hvar hefir þú unnið? Blessaður sé sá, sem vikið hefir þér góðu! Og hún sagði tengdamóður sinni frá, hjá hverjum hún hefði unnið, og mælti: Maðurinn, sem eg hefi unnið hjá í dag, heitir Bóas.
Þá sagði Noomí við tengdadóttur sína: Blessaður sé hann af Drottni, sem hefir ekki látið af miskunn sinni við lifandi og látna. Og Noomí sagði við hana: Maðurinn er okkur nákominn; hann er einn af lausnarmönnum okkar.
Þá sagði Rut hin móabitiska: Hann sagði og við mig: Haltu þig hjá mínum piltum, unz þeir hafa lokið öllum kornskurði hjá mér.
Og Noomí sagði við Rut, tengdadóttur sína: Það er gott, dóttir mín, að þú farir út með ambáttum hans; þá munu menn eigi áreita þig á öðrum akri.
Síðan hélt hún sig hjá stúlkum Bóasar, þá er hún var að tína, unz byggskurðinum og hveitiskurðinum var lokið; eftir það var hún kyr hjá tengdamóður sinni.