Rutarbók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Rutarbók 1

Í þá daga, er dómararnir stjórnuðu, bar svo til að hallæri var í landinu. Fór þá maður nokkur frá Betlehem í Júda, til þess að dveljast sem útlendingur í Móabslandi, ásamt konu sinni og tveimur Sonum sínum.

Þessi maður hét Elímelek og kona hans Noomí, en synir hans tveir Mahlón og Kiljón — Efratítar frá Betlehem í Júda. Þau komu til Móabslands og dvöldust þar.

Þá dó Elímelek, maður Noomí, en hún lifði eftir með báðum sonum sínum.

Þeir gengu að eiga móabítískar konur, og hét önnur Orpa, en hin Rut. Og þeir bjuggu þar hér um bil tíu ár.

Þá dóu þeir líka báðir, Mahlón og Kiljón, og konan lifði ein eftir báða sonu sína og mann sinn.

Þá bjóst hún til að hverfa aftur heim frá Móabslandi með tengdadætrum sínum; því að hún hafði heyrt í Móabslandi, að Drottinn hefði vitjað lýðs síns og gefið þeim brauð.

Lagði hún nú af stað þaðan, er hún hafði verið, og báðar tengdadætur hennar með henni. En er þær voru farnar á leið, til þess að hverfa aftur til Júdalands,

þá sagði Noomí við báðar tengdadætur sínar: Farið, snúið við, hvor um sig til húss móður sinnar. Drottinn auðsýni ykkur gæzku, eins og þið hafið auðsýnt hinum látnu og mér.

Drottinn gefi ykkur, að þið megið finna athvarf hvor um sig í húsi manns síns. Síðan kysti hún þær. En þær tóku að gráta hástöfum

og sögðu við hana: Nei, við viljum hverfa aftur með þér til þíns fólks!

Noomí svaraði: Hverfið aftur, dætur mínar! Hví viljið þið fara með mér? Mun eg enn bera sonu í skauti mínu, er verða megi menn ykkar?

Hverfið aftur, dætur mínar, farið heim, því að eg er orðin of gömul til að giftast aftur. En setjum nú svo, að eg hugsaði: Eg hefi enn von, og að eg giftist meira að segja í kveld og fæddi einnig sonu — ættuð þið fyrir þá sök að bíða, til þess er þeir yrðu fulltíða?

Ættuð þið fyrir þá sök að loka ykkur inni og ekki giftast? Nei, dætur mínar, því að mig tekur mjög sárt til ykkar; því að hönd Drottins hefir lagst þungt á mig.

Þá tóku þær enn að gráta hástöfum. Og Orpa kvaddi tengdamóður sína með kossi, en Rut gat ekki slitið sig frá henni.

Þá mælti hún: Sjá, mágkona þín er snúin heim aftur til síns fólks og síns guðs; far þú heim aftur á eftir mágkonu þinni.

En Rut svaraði: Legðu eigi að mér um það að yfirgefa þig og hverfa aftur, en fara eigi með þér; því að hvert sem þú fer, þangað fer eg, og hvar sem þú náttar, þar nátta eg; þitt fólk er mitt fólk og þinn guð er minn guð.

Hvar sem þú deyr, þar dey eg, og þar vil eg vera grafin. Hvað sem Drottinn lætur fram við mig koma, þá skal dauðinn einn aðskilja mig og þig.

Og er hún sá, að hún var fastráðin í því að fara með henni, hætti hún að tala um fyrir henni.

Síðan héldu þær báðar áfram, unz þær komu til Betlehem. En er þær komu til Betlehem, komst öll borgin í uppnám út af þeim og konur sögðu: Er þetta Noomí?

Og hún sagði við þær: Kallið mig ekki Noomí, kallið mig Mara, því að hinn Almáttki hefir búið mér beiska harma.

Rík fór eg héðan, en tómhenta hefir Drottinn látið mig aftur hverfa. Hví kallið þér mig Noomí, úr því Drottinn hefir vitnað í móti mér og hinn Almáttki hrelt mig.

Þannig hvarf Noomí heim aftur og með henni Rut hin móabítíska, tengdadóttir hennar, sem heim hvarf frá Móabslandi; og þær komu til Betlehem í byrjun byggskurðar.