Rómverjabréfið 13Krans-útgáfa

Rómverjabréfið 13

Sérhver sál sé yfirboðnum valdstéttum hlýðin; því að ekki er nein valdstétt til nema frá Guði, og þær sem til eru, þær eru skipaðar af Guði;

svo að sá, sem veitir valdstéttinni mótstöðu, hann veitir Guðs tilskipun mótstöðu; en þeir, sem veita mótstöðu, munu fá dóm sinn.

Því að valdsmennirnir eru eigi ótti góðum verkum, heldur vondum. En viljir þú eigi þurfa að óttast valdstéttina, þá gjör það sem gott er, og muntu fá lofstír af henni;

því að hún er þjónn Guðs þér til góðs, en ef þú gjörir það sem ilt er, þá skaltu óttast; því að hún ber ekki sverðið ófyrirsynju, með því að hún er Guðs þjónn, hegnari til refsingar þeim, er aðhefst hið illa.

Þess vegna er nauðsynlegt að hlýðnast, ekki einungis vegna hegningarinnar, heldur og vegna samviskunnar.

Einmitt þess vegna gjaldið þér og skatta, því að þeir eru Guðs þjónar, sem starfa að þessu sama.

Gjaldið öllum það sem skylt er, þeim skattinn, sem skatturinn ber, þeim tollinn, sem tollurinn ber, þeim óttann, sem óttinn ber, þeim virðinguna, sem virðingin ber.

Skuldið ekki neinum neitt nema það að elska hver annan; því að sá sem elskar annan, hefir uppfylt lögmálið.

Því að þetta: Þú átt ekki að drýgja hór; þú átt ekki að vega mann; þú átt ekki að stela; þú átt ekki að girnast, og hvert annað boðorð er í þessari grein innifalið, í þessu: Þú átt að elska náunga þinn eins og sjálfan þig.

Kærleikurinn gjörir ekki náunganum mein; þess vegna er kærleikurinn fylling lögmálsins.

Og þetta því heldur sem þér þekkið tímann, að yður er mál að rísa af svefni, því að nú er oss hjálpræðið nær, en þá er vér tókum trú.

Liðið er á nóttina, en dagurinn í nánd; leggjum því af verk myrkursins og íklæðumst hertýgjum ljóssins.

Framgöngum sómasamlega eins og á degi, ekki í ofáti eða ofdrykkju, ekki í ólifnaði né saurlífi, ekki í þrætu né öfund,

heldur íklæðist drotni Jesú Kristi, og alið ekki önn fyrir holdinu, svo að það verði til að æsa girndir.