Svo áminni eg yður þá, bræður, fyrir miskunnsemi Guðs, að þér frambjóðið, svo sem skynsamlega guðsdýrkun, líkami yðar sem fórn, lifandi, heilaga, Guði þóknanlega,
og hegðið yður eigi eftir öld þessari; heldur takið háttaskifti með endurnýungu hugarfarsins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, velþóknanlega og fullkomna.
Því að fyrir þá náð, sem mér er gefin, segi eg sérhverjum, sem á meðal yðar er, að hugsa ekki hærra en hugsa ber, heldur að hugsa svo, að hann hugsi hyggilega, sérhver eins og Guð hefir úthlutað honum mæli trúarinnar.
Því að eins og vér höfum á einum líkama marga limi, en limirnir hafa ekki allir sama starfa,
þannig erum vér hinir mörgu einn líkami í Kristi, en hver um sig annars limir;
en þar eð vér höfum margvíslegar náðargjafir, eftir þeirri náð, sem oss er gefin, hvort heldur það er spádómsgáfa, þá notum hana í hlutfalli við trúna,
eða þjónusta, þá gefum oss við þjónustunni, eða það er maður, sem kennir, hann gefi sig við kenslunni,
eða maður, sem áminnir, við áminningunni; sá sem útbýtir, gjöri það í einlægni, sá sem forstöðu veitir, gjöri það með kostgæfni, sá sem iðkar miskunnsemi, gjöri það með gleði.
Elskan sé flærðarlaus; hafið andstygð á hinu vonda, en haldið fast við hið góða.
Verið í bróðurkærleikanum ástúðlegir hver við annan og verið hver öðrum fyrri til að veita hinum virðingu;
í áhuganum ekki hálfvolgir; í andanum brennandi;
drotni þjónandi; glaðir í voninni, þolinmóðir í þjáningunni, staðfastir í bæninni.
Takið þátt í nauðsynjum heilagra; stundið gestrisnina.
Blessið þá, er ofsækja yður; blessið, en bölvið ekki.
Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum.
Berið sama hug hver til annars; hugsið eigi um hið háa, en haldið yður að hinum lítilmótlegu. Ætlið yður eigi hygna með sjálfum yður;
gjaldið engum ilt fyrir ilt; stundið það sem fagurt er fyrir sjónum allra manna;
ef mögulegt er, að því er til yðar kemur, þá hafið frið við alla menn;
hefnið yðar ekki sjálfir, þér elskaðir, heldur gefið rúm reiðinni; því að ritað er: Mín er hefndin, eg mun endurgjalda, segir Drottinn.
En ef óvin þinn hungrar, þá gef honum að eta, ef hann þyrstir, þá gef honum að drekka, því að með því að gjöra þelta safnar þú glóðum elds á höfuð honum.
Lát ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigra þú hið vonda með hinu góða.