Rómverjabréfið 14Krans-útgáfa

Rómverjabréfið 14

Takið að yður hinn trúarveika, ekki til þess að dæma um skoðanir.

Einn er þeirrar trúar, að alls megi neyta, en hinn trúarveiki neytir einungis jurtafæðu.

Sá sem etur, fyrirlíti ekki hinn, sem ekki etur, og sá sem ekki etur, dæmi ekki þann, sem etur; því að Guð hefir tekið hann að sér.

Hver ert þú, sem dæmir annarlegan þjón? Hann stendur og fellur herra sínum; og hann mun standa; því að máttugur er Drottinn að láta hann standa.

Einn gjörir sér dagamun, en annar metur alla daga jafna. Sérhver hafi örugga sannfæringu í huga sínum.

Sá sem tekur tillit til daga, gjörir það vegna Drottins, og sá sem etur, etur drotni, því að hann gjörir Guði þakkir; og sá sem ekki etur, það er vegna Drottins, að hann etur ekki, og hann gjörir Guði þakkir.

Því að enginn af oss lifir sjálfum sér, og enginn deyr sjálfum sér,

því að hvort sem vér lifum, lifum vér drotni, eða vér deyjum, deyjum vér drotni; hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins.

Því að til þess dó Kristur og varð aftur lifandi, að hann skyldi drotna bæði yfir dauðum og lifandi.

En þú, hví dæmir þú bróður þinn? Eða þá þú, hví fyrirlítur þú bróður þinn? Því að allir munum vér verða að koma fram fyrir dómstól Guðs.

Því að ritað er: Svo sem eg lifi, segir Drottinn, fyrir mér skulu öll kné beygja sig og sérhver tunga vegsama Guð.

Fyrir því skal þá sérhver af oss lúka Guði reikning fyrir sjálfan sig.

Dæmum því ekki framar hver annan, en kveðið öllu heldur upp þann dómsúrskurð, að þér skulið ekki setja ásteytingu eður hneyksli fyrir bróður yðar.

Eg veit það og er þess fullviss í drotni Jesú, að ekkert er vanheilagt í sjálfu sér, nema þá þeim, sem heldur eitthvað vanheilagt; honum er það vanheilagt.

Því að ef bróðir þinn hryggist sökum matar, þá gengur þú ekki framar eftir kærleikanum. Hrind ekki með mat þínum í glötun þeim manni, sem Kristur er dáinn fyrir.

Látið því ekki hið góða, sem þér eigið, verða fyrir lasti.

Því að ekki er guðsríki matur og drykkur, heldur réttlæti og friður og fögnuður í heilögum anda.

Því að hver sem þjónar Kristi í þessu, hann er Guði velþóknanlegur og fullreyndur fyrir mönnunum.

Keppum þess vegna eftir því, sem til friðarins heyrir og til hinnar sameiginlegu uppbyggingar.

Brjóttu ekki niður verk Guðs vegna matar! Alt er að sönnu hreint; en það er þó ilt þeim manni, sem etur til ásteytingar.

Það er rétt að eta hvorki kjöt né drekka vín né gjöra neitt, sem bróðir þinn steytir sig á.

Haf þú þá trú, sem þú hefir, hjá sjálfum þér fyrir Guði. Sæll er sá, sem áfellir sig ekki fyrir það, sem hann hefir valið.

En sá sem er efablandinn, hann er dæmdur, ef hann etur, af því að það er ekki af trú; en alt sem ekki er af trú, er synd.