Prédikarinn 9Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Prédikarinn 9

Því að öllu þessu veitti eg athygli og alt þetta reyndi eg að rannsaka: að hinir réttlátu og vitru og verk þeirra eru í hendi Guðs; hvorki elsku né hatur veit maðurinn fyrir; alt liggur fram undan Þeim.

Alt getur alla hent; sömu örlög mæta réttlátum og óguðlegum, Sóðum og hreinum og óhreinum, þeim er fórnfærir og þeim er ekki fórnfærir; hinum góða farnast eins og syndaranum, og þeim er sver eins og þeim er óttast svardaga.

Það er ókostur við alt, sem við ber lindir sólinni, að sömu örlög mæta öllum, og því fyllist hjarta mannmina ilsku, ög heimska ríkir í hjörtum þeirra alla æfi þeirra og síðan uggur leiðin til hinna dauðu.

Því að meðan maður er sameinaður Öllum, sem lifa, á meðan er von; því að lifandi hundur er betri en dautt ljón.

Því að þeir, sem lifa, vita að þeir eiga að deyja, en hinir dauðu vita ekki neitt og hljóta engin laun framar, því að minning Þeirra gleymist.

Bæði elska þeirra og hatur og öfund, það er fyrir löngu farið, og þeir eiga aldrei framar hlutdeild í neinu því, sem við ber undir sólinni.

Far því og et brauð þitt með ánægju og drekk vín þitt með glöðu hjarta; því að Guð hefir þegar lengi haft velþóknun á verkum þínum.

Klæði þín séu ætíð hvít og höfuð þitt skorti aldrei olíu.

Njót þú lífsins með þeirri konu, sem þú elskar, alla daga þíns fánýta lífs, sem hann hefir gefið þér undir sólinni, alla þína fánýtu daga, því að það er hlutdeild þín í lífinu og það sem þú fær fyrir strit þitt, sem þú streitist við undir sólinni.

Alt, sem hönd þín megnar að gjöra með kröftum þínum, gjör þú það; því að í dánarheimum, þangað sem þú fer, er hvorki starfsemi, né hyggindi, né þekking, né vizka.

Enn sá eg undir sólinni, að hinir fljótu ráða ekki yfir hlaupinu, né kapparnir yfir stríðinu, né heldur spekingarnir yfir brauðinu, né hinir hygnu yfir auðnum, né vitsmunamennirnir yfir vinsældinni, því að tími og tilviljun mætir þeim öllum.

Því að maðurinn þekkir ekki einu sinni sinn tíma; eins og fiskarnir festast í hinu háskalega neti og eins og fuglarnir festast í snörunni — á líkan hátt verða mennirnir fangnir á óheillatíð, þá er hún kemur skyndilega yfir þá.

Þetta sá eg einnig sem speki undir sólinni og fanst mér mikið um:

Einu sinni var lítil borg og fáir menn í henni; voldugur konungur fór í móti henni og settist um hana og reisti mikil hervirki gegn henni.

En í borginni var fátækur maður, en vitur, og hann bjargaði borginni með viturleik sínum; en enginn maður mintist þessa fátæka manns.

Þá hugsaði eg: vizka er betri en afl, en vizka fátæks manns er fyrirlitin og orðum hans er eigi gaumur gefinn.

Orð viturra manna, sem hlustað er á í ró, eru betri en óp valdhafans meðal heimskingjanna.

Vizka er betri en hervopn, en einn syndari spillir mörgu góðu.