Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Hver er sem spekingurinn og hver skilur þýðingu hlutanna? Speki mannsins hýrgar andlit hans, og þrjózkan í andlitinu breytist.
Eg segi: varðveit þú boð konungsins, og það vegna eiðsins við Guð.
Ver þú eigi fljótur til að ganga burt frá honum; gef þig eigi við illu málefni. Því að hann gjörir alt, sem hann vill,
af því að konungsorð er máttugt, og hver segir við hann: Hvað gjörir þú?
Sá, sen! A varðveitir skipunina, mun ekki kenna á neinu illu, og hjarta viturs manns þekkir tíma og dóm.
Því að sérhvert fyrirtæki á sinn tíma og dóm, því að Þböl mannsins hvílir þungt á honum.
Því að hann veit ekki, hvað verða muni, því að hver segir honum, hvernig það muni verða?
Enginn maður ræður yfir vindinum, svo að hann geti stöðvað vindinn, og enginn maður hefir vald yfir dauðadeginum, og enginn fær sig lausan úr bardaganum; og óhæfan bjargar ekki þeim, er hana fremur.
Alt þetta hefi eg séð, og það með því, að eg veitti athygli öllu því, sem gjörist undir sólinni, þegar einn maðurinn drotnar yfir öðrum honum til ógæfu.
Og því næst sá eg óguðlega menn, sem voru jarðaðir og gengu til hvíldar; en þeir, er gjört höfðu það, sem rétt var, máttu fara burt frá hinum heilaga stað og gleymdust í borginni. Einnig það er hégómi.
Af því að dómi yfir verkum ílskunnar er ekki fullnægt þegar í stað, þá svellur mönnum móður til þess að gjöra það, sem út er,
af því að syndarinn gjörir það, sem út er, hundrað sinnum og verður samt gamall, þótt eg hins vegar viti, að guðhræddum mönnum, er óttast hann, muni vel vegna.
En hinum óguðlega mun ekki vel vegna og hann mun ekki verða langlífur fremur en skugginn, af því að hann óttast ekki Guð.
Það er hégómi, sem gjörist á jörðunni, að til eru téttlátir menn, sem verða fyrir því, er óguðlegir eiga skilið, og til eru Óguðlegir menn, sem verða fyrir því, er réttlátir eiga skilið. Eg sagði: einnig það er hégómi.
Fyrir því lofaði eg gleðina, því að ekkert betra er til fyrir manninn undir sólinni en að eta og drekka og vera glaður; og það fylgi honum í striti hans um æfidagana, sem Guð hefir gefið honum undir sólinni.
Þegar eg lagði allan hug á að kynna mér speki og að sjá það starf, sem framið er á jörðunni — því að hvorki dag né nótt kemur manni blundur á auga —,
þá sá eg, að maðurinn getur ekki skilið til fulls alt Guðs verk, það verk, sem gjörist undir sólinni, því að hversu mjög sem maðurinn gjörir sér far um að leita, fær hann þó ekki skilið það til fulls, og enda þótt spekingurinn hyggist að þekkja það, þá fær hann eigi skilið það til fulls.