Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Betra er gott mannorð en góð smurningarolía og dauðadagur betri en fæðingardagur.
Betra er að ganga í sorgarhús en að ganga í Veizlusal, því að það eru endalok sérhvers manns, og sá, sem lifir, af af ag hugfestir það.
Betri er gremja en hlátur, því að þegar andlitið er dapurt, líður hjartanu vel.
Hjarta spekinganna er í sorgarhúsi, en hjarta heimskingjanna í gleðihúsi.
Betra er að hlýða á ávítur viturs manns en á söng heimskra manna.
Því að hlátur heimskingjans er eins og þegar snarkar í þyrnum undir potti; einnig það er hégómi.
Því að kúgun gjörir vitran mann að heimskingja, og mútur spilla hjartanu.
Betri er endir máls en upphaf; betri er þolinmóður maður en þóttafullur.
Ver þú eigi fljótur til að láta þér gremjast, því að gremja hvílir í brjósti heimskra manna.
Seg ekki: hvernig stendur á því, að hinir fyrri dagar voru betri en þessir? Því að eigi er það af skynsemi, að þú spyr um það.
Speki er eins góð og óðal, og ávinningur fyrir þá, sem sólina líta.
Því að spekin veitir forsælu, eins og silfrið veitir forsælu; en yfirburðir þekkingarinnar eru þeir, að spekin heldur lífinu í þeim, sem hana á.
Skoða þú verk Guðs; því að hver getur gjört það beint, er hann hefir gjört bogið.
Ver þú í góðu skapi á hinum góða degi, og hugleið þetta á hinum vonda degi: Guð hefir gjört þennan alveg eins og hinn, til þess að maðurinn viti, að hann. eigi ekkert síðar í vændum.
Alt hefi eg séð á mínum fánýtu æfidögum: margur réttlátur maður ferst í réttlæti sínu og margur guðlaus maður lifir lengi í ilsku sinni.
Ver þú ekki of réttlátur og sýn þig ekki frábærlega vitran; hví vilt þú tortíma sjálfum þér?
Breyttu eigi of óguðlega og ver þú eigi heimskingi; hví vilt þú deyja áður en þinn tími er kominn?
Það er gott, að þú sért fastheldinn við þetta, en sleppir þó ekki hendinni af hinu, því að sá, sem óttast Guð, kemst hjá því öllu.
Spekin veitir vitrum manni meiri kraft en tíu valdhafar, sem eru í borginni.
Því að enginn réttlátur maður er til á jörðunni, er gjört hafi gott eitt og aldrei syndgað.
Gef þú heldur ekki gaum öllum þeim orðum, sem töluð eru, til þess að þú heyrir eigi þjón þinn bölva þér.
Því að þú ert þér þess meðvitandi, að þú hefir og sjálfur oftsinnis bölvað öðrum.
Alt þetta hefi eg reynt með speki; eg hugsaði: eg vil verða vitur, en spekin er fjarlæg mér.
Fjarlægt er það, sem er, og djúpt, já djúpt; hver getur fundið það?
Eg sneri mér og beindi huga mínum að því að þekkja og rannsaka og leita vizku og hygginda, og að komast til viðurkenningar á því, að óguðleiki er heimska og heimska vitleysa.
Og eg fann að konan er bitrari en dauðinn, því að hún er net og hjarta hennar snara, hendur hennar fjötrar. Sá, sem Guði þóknast, kemst undan henni, en syndarinn verður fanginn af henni.
Sjá, þetta hefi eg fundið, segir prédikarinn, með því að leggja eitt við annað, til þess að komast að hyggindum.
Það, sem eg hefi stöðugt leitað að, en ekki fundið, það er þetta: einn mann af þúsundi hefi eg fundið, en kónn á meðal allra þessara hefi eg ekki fundið.
Sjá, þetta eitt hefi eg fundið, að Guð hefir skapað manninn beinan, en þeir leita margra bragða.