Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til er böl, sem eg hefi séð undir sólinni, og það liggur þungt á mönnunum.
Þegar Guð gefur einhverjum manni ríkidæmi, auðsefi og heiður, svo að hann skortir ekkert af því, er hann girnist, en Guð gjörir hann ekki færan um að njóta þess, heldur nýtur annar maður þess — það er hégómi og vond þjáning.
Þótt einhver eignaðist hundrað börn og lifði mörg ár, og æfidagar hans yrðu margir, en sál hans mettaðist ekki af gæðum og hann fengi heldur enga greftrun, þá Segi eg: ótímaburðurinn er sælli en hann.
Því að hann er kominn í hégóma og fer burt í myrkur, og nafn hans er myrkri hulið;
hann hefir ekki heldur séð sólina né þekt hana; hann hefir meiri ró enn hinn.
Og þótt hann lifi tvenn þúsund ár, en njóti einskis fagnaðar: fer ekki alt sömu leiðina?
Alt strit mannsins er fyrir munn hans; og þó seðst girndin aldrei.
því ag hvaða yfirburði hefir spekingurinn fram yfir heimskingjann? hvaða yfirburði hinn snauði, er kann að ganga frammi fyrir þeim, sem lifa?
Betri er sjón augnanna en reik girndarinnar. Einnig það Er hégómi og eftirsókn eftir vindi. Á
Það, sem við ber, hefir fyrir löngu hlotið nafn sitt, og það er ákveðið, hvað menn eiga að verða, og maðurinn getur ekki deilt við Þann, sem honum er mátkari.
Og þótt til séu mörg orð, sem auka hégómann — hvað er maðurinn að bættari?
Því að hver veit, hvað gott er fyrir manninn í lífinu, alla daga hans fánýta lífs, er hann lifir sem skuggi? Því að hver segir manninum, hvað bera muni við eftir hans dag undir sólinni?