Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Eitraðar flugur valda ódaun, með því að hleypa ólgu í olíu smyrslarans; ofurlitill aulaskapur er þyngri á metunum heldur en vizka, heldur en sómi.
Hjarta viturs manns stefnir til hægri, en hjarta heimskingjans til vinstri.
Og þegar aulinn er kominn út á veginn, brestur og á vitið, og hann segir við hvern mann, að hann sé auli.
Ef reiði drotnarans rís í gegn þér, þá yfirgef ekki stöðu þína; því að stilling afstýrir stórum glappaskotum.
Til er böl, sem eg hefi séð undir sólinni, nokkurs konar yfirsjón af hálfu valdhafans: Gheimskan er sett í háu stöðurnar, en gölúgmennin sitja í niðurlægingu.
heimskan er sett í háu stöðurnar, en göfugmennin sitja í niðurlægingu.
Eg sá þræla ríðandi á hestum og höfðingja fótgangandi eins og þræla.
Sá, sem grefur gröf, getur fallið í hana; og þann, sem rífur niður vegg, getur höggormur bitið.
Sá sem sprengir steina, getur meitt sig á þeim, sá sem klýfur við, getur með því stofnað sér í hættu.
Ef öxin er orðin sljó og eggin er ekki brýnd, þá verður maðurinn að neyta því meiri orku. Það er ávinningur að undirbúa sérhvað með hagsýni.
Ef höggormurinn bítur, af því að særingar hafa verið vanræktar, þá kemur særingamaðurinn að engu liði.
Orð af munni viturs manns eru yndisleg, en varir heimskingjans vinna honum tjón.
Fyrstu orðin fram úr honum eru heimska og endir ræðu hans er ill flónska.
Og heimskinginn talar mörg orð; og þó veit maðurinn ekki, hvað verða muni; og hvað verða muni eftir hans dag, hver segir honum það?
Amstur heimskingjanna þreytir þann einn, sem ekki ratar veginn inn í borgina.
Vei þér, land, sem hefir dreng að konungi og höfðingjar þín setjast að áti að morgni dags!
Sætt ert þú, land, sem hefir eðalborinn mann að konungi og höfðingjar þínir eta á réttum tíma, sér til styrkingar, en ekki til þess að verða druknir.
Fyrir leti síga bjálkarnir niður og vegna iðjulausra handa lekur húsið.
Til gleðskapar búa menn máltíðir, og vín gjörir lífið skemtilegt og peningarnir veita alt.
Formæl ekki konunginum, jafnvel ekki í huga þínum, og formæl ekki ríkum manni í svefnherbergjum þínum; því að fuglar loftsins kynnu að bera burt hljóðið og hinir vængjuðu að hafa orðin eftir.