Prédikarinn 11Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Prédikarinn 11

Varpa þú brauði þínu út á vatnið, því þegar margir dagar eru um liðnir, munt þú finna það aftur.

Skiftu hlutanum sundur í sjö eða jafnvel átta, því að þú veizt ekki, hvaða ógæfa muni koma yfir landið.

Þegar skýin eru orðin full af vatni, hella þau regni yfir jörðina’; og þegar tré fellur til suðurs eða norðurs — á þeim stað, þar sem tréð fellur, þar liggur það kyrt.

Sá sem sífett gáir að vindinum, sáir ekki, og sá sem sífett horfir á skýin, uppsker ekki.

SEins og þú veizt ekki, hvaða veg vindurinn fer og hvernig beinin myndast í móðurkviði þungaðrar konu, eins þekkir þú heldur ekki verk Guðs, sem alt gjörir.

Sá sæði þínu að morgni og lát hendur þínar eigi hvílast að kveldi; því að þú veizt ekki, hvað muni hepnast, þetta eða hitt, eða hvort hvorttveggja verður gott.

Inndælt er ljósið og ljúft er fyrir augun að horfa á sólina.

Því þegar maðurinn lifir mörg ár, þá á hann að vera glaður öll þau ár og minnast þess að dagar myrkursins verða margir; alt, sem á eftir kemur, er hégómi.

Gleð þig, ungi maður, í æsku þinni og lát liggja vel á þér unglingsár þín og breyt þú eins og hjartað leiðir þig og eins og augun girnast; en vit, að fyrir alt þetta leiðir Guð þig fyrir dóm.

Og hrind gremju burt frá hjarta þínu og lát eigi böl koma nærri líkama þínum; því að æska og morgunroði lífsins eru hverful.