Prédikarinn 12Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Prédikarinn 12

Og mundu eftir skapara þínum á unglingsárum þínum, áður en vondu dagarnir koma og þau árin nálgast, er þú segir um: mérlíka þau ekki;

áður en sólin myrkvast og ljósið og tunglið og stjörnurnar, og áður en skýin koma aftur eftir regnið

þá er þeir skjálfa, sem hússins geyma, og sterku mennirnir verða bognir og kvarnarstúlkurnar hafast ekki að, af því að þær eru orðnar fáar, og dimt er orðið hjá þeim, sem líta út um gluggana,

og dyrunum út að götunni er lokað, með því að hávaðinn í kvörninni minkar, og menn fara á fætur við fuglskvak, og allar söngkonur verða lágróma.

Þá eru menn og hræddir við hæðir og þá eru skelfingar á veginum og möndlutréð stendur í blóma og engispretturnar dragast áfram og kaper-ber hrífa ekki lengur; því að maðurinn fer burt til síns eilífðar-húss og grátendurnir ganga um strætið; —

áður en silfurþráðurinn slitnar og gullskálin brotnar og skjólan mölvast við lindina og hjólið brotnar við brunninn,

og moldin hverfur aftur til jarðarinnar, þar sem hún áður var, og andinn til Guðs, sem gaf hann.

Aumasti hégómi, segir prédikarinn, alt er hégómi!

En auk þess sem prédikarinn var spekingur, miðlaði hann og mönnum þekkingu og rannsakaði og kynti sér og samdi mörg spakmæli.

Prédikarinn leitaðist við að finna fögur orð, og það, sem hann hefir skrifað í einlægni, eru sannleiksorð.

Orð spekinganna eru eins og broddar og kjarnyrðin eins og fastreknir naglar — þau eru gefin af einum hirði.

Og enn fremur: sonur minn, þýðstu viðvaranir. Að taka saman margar bækur, á því er enginn endir, og mikil bókiðn þreytir líkamann.

Vér skulum hlýða á niðurlagsorðið í því öllu: óttastu Guð og haltu hans boðorð, því að það á hver maður að gjöra.

Því að Guð mun leiða sérhvert verk fyrir dóm, sem haldinn verður yfir öllu því, sem hulið er, hvort sem það er gott eða ilt.