Gamla testamentiðSaga
Og þetta eru prestarnir og Levítarnir, sem heim fóru með þeim Serúbabel Sealtíelssyni og Jesúa: Seraja, Jeremía, Esra,
Amarja, Mallúk, Hattús,
Sekanja, Rehúm, Meremót,
Íddó, Ginntói, Abía,
Míjamín, Maadja, Bílga,
Semaja, Jójaríb, Jedaja,
Sallú, Amók, Hilkía og Jedaja; þetta voru höfðingjar prestanna og bræðra þeirra á dögum Jesúa.
Og Levítarnir: Jesúa, Binnúí, Kadmíel, Serebja, Júda, Mattanja; en yfir þakkarsöngnum stjórnaði hann og bræður hans, í flokkum hvor gegn öðrum;
Bakbúkja og Únnií, bræður þeirra, stóðu gegnt þeim til þjónustugjörðar.
Og Jesúa gat Jójakim, og Jójakim gat Eljasíb, og Eljasíb gat Jójada,
og Jójada gat Jónatan, og Jónatan gat Jaddúa.
Og á dögum Jójakíms voru þessir ætthöfðingjar meðal prestanna: Meraja fyrir Seraja, Hananja fyrir Jeremía,
Mesúllam fyrir Esra, Jóhanan fyrir Amarja,
Jónatan fyrir Mallúkí, Jósef fyrir Sebanja,
Adna fyrir Harím, Helkaí fyrir Merajót,
Sakaría fyrir íddó, Mesúllam fyrir Ginnetón,
Síkri fyrir Abía, …… fyrir Minjamín, Piltaí fyrir Móadja,
Sammúa fyrir Bílga, Jónatan fyrir Semaja,
Matnaí fyrir Jójaríb, Ússí fyrir Jedaja,
Kallaí fyrir Sallaí, Eber fyrir Amók,
Hasabja fyrir Hilkía, Netaneel fyrir Jedaja.
Levítarnir: Á dögum Eljasíbs, Jójada, Jóhanans og Jaddúa voru ætthöfðingjarnir skráðir og prestarnir alt fram að ríkisstjórn Daríusar hins persneska.
Af niðjum Leví voru ætthöfðingjarnir skráðir í árbókina, og það fram á daga Jólianans Eljasíbssonar.
Og höfðingjar Levítanna voru: Hasabja, Serebja, Jesúa, Baní, Kadmíel og bræður þeirra, er stóðu gegnt þeim, til þess að vegsama Guð með því að syngja lofsönginn, samkvæmt fyrirmælum guðsmannsins Davíðs, hvor söngflokkurinn gegnt öðrum:
Mattanja, Bakbúkja, Óbadía, Mesúllam; Talmón og Akkúb voru hliðverðir, er héldu vörð hjá geymsluhúsunum við hliðin.
Þessir voru ætthöfðingjarnir á dögum Jójakíms Jesúasonar, Józadakssonar, og á dögum Nehemía landstjóra og Esra prests hins fróða. Vígðir múrarnir.
En er vígja skyldi múra Jerúsalem, sóttu menn Levítana frá öllum stöðum þeirra, til þess að fara með þá til Jerúsalem, svo að þeir mættu halda vígsluhátíð með fagnaðarlátum og þakkargjörð og með - söng, skálabumbum, hörpum og gígjum.
Þá söfnuðust söngflokkarnir saman, bæði úr nágrenninu kring um Jerúsalem og úr þorpum Netófatíta
og frá Bet-Gilgal og Geba-sveitum og Asmavet; því að söngvararnir höfðu bygt sér þorp kring um Jerúsalem.
Og prestarnir og Levítarnir hreinsuðu sig og hreinsuðu því næst Lýðinn og hliðin og múrana.
Og eg lét höfðingja Júda stíga upp á múrinn og fylkti tveimur stórum lofgjörðar-söngflokkum og skrúðsveitum; gekk annar söngflokkurinn til hægri uppi á múrnum til Mykjuhliðs,
og á eftir þeim gekk Hósaja og helmingurinn af höfðingjum Júda,
og Asarja, Esra og Mesúllam,
Júda og Benjamín og Semaja og Jeremía,
og nokkurir af Þrestlingunum með lúðra: Sakaría Jónatansson, Semajasonar, Mattanjasonar, Míkajasonar, Sakkúrssonar,
og bræður hans: Semaja og Asareel, Mílalaí, Gílalaí, Maaí, Netaneel og Júda, Hananí, með hljóðfæri Davíðs guðsmannsins, og Esra fræðimaður gekk fremstur þeirra,
og alla leið til Lindarhliðs, og þaðan fóru þeir beint upp tröppurnar, sem liggja upp að Davíðsborg, þar sem gengið er upp á múrinn, fyrir ofan höll Davíðs og austur að Vatnshliði.
Og hinn söngflokkurinn gekk til vinstri, en eg og hinn helmingur lýðsins á eftir honum, uppi á múrnum, yfir Ofnaturn og alt að Hreiðamúr,
og yfir Efraímhiið og gamla hliðið og Fiskhlið og Hananeelturn og Meaturn og alt að Sauðahliði, og námu þeir staðar við Hýllissuhlið.
Þannig námu báðir söngflokkarnir staðar hjá musteri Guðs, og eg og helmingur yfirmannanna með mér,
Og prestarnir Eljakím, Maaseja, Minjamín, Míkaja, Eljóenaí, Sakaría, Hananja með lúðra,
og Maaseja, Semaja, Eleasar, Ússí, Jóhanan, Malkía, Elam og Eser. Og söngvararnir létu til sín heyra, og Jisrahja var yfirmaður þeirra.
Og menn fórnuðu miklum fórnum þennan dag og glöddust, því að Guð hafði veitt þeim mikla gleði, og konur og börn glöddust líka, svo að gleði Jerúsalem spurðist víðsvegar. Um greiðslur til presta og Levíta. Útlendingar skildir úr Ísrael.
Þennan sama dag voru skipaðir tilsjónarmenn yfir klefana, sem hafðir voru að forðabúrum fyrir lyftifórnir, frumgróðafórnir og tíundir, til þess að þangað væri safnað greiðslum þeim af ökrunum umhverfis borgirnar, er prestunum og Levítunum báru eftir lögmálinu, því að Júda gladdist yfir prestunum og Levítunum, þeim er þjónustu gegndu.
Og þeir gættu þess, sem gæta átti við Guð þeirra, og þess sem gæta átti við hreinsunina; svo gjörðu og söngvararnir og hliðverðirnir, samkvæmt fyrirmælum Davíðs og Salómós sonar hans.
Því að þegar forðum, á dögum Davíðs og Asafs, yfirmanns söngvaranna, var til lofgjörðar- og þakkargjörðarsöngur til handa Guði.
Og allir Ísraelsmenn intu af hendi á dögum Serúbabels og á dögum Neliemía greiðslurnar til söngvaranna og hliðvarðanna, það er með þurfti á degi hverjum; og þeir greiddu Levítunum helgigjafir, og Levítarnir greiddu Arons niðjum helgigjafir.