Nehemíabók 13Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Nehemíabók 13

Þann dag var lesið upp úr Mósebók fyrir lýðnum, og fanst þá —— skrifað í henni, að hvorki Ammóníti né Móabíti mættu nokkurn sinni koma í söfnuð Guðs,

vegna þess að þeir komu ekki í móti Ísraelsmönnum með brauð og vatn og keyptu í móti þeim Bíleam, til að bölva þeim; en Guð vor sneri bölvaninni í hlessan.

Og er þeir heyrðu lögmálið, skildu þeir alla útlendinga úr Ísrael. Ýmsar aðgjörðir Nohomía, þá er hann var öðru sinni í Jerúsalem.

En áður en þetta varð, hafði Eljasíb prestur, frændi Tobía, sá er settur var yfir herbergi musteris Guðs vors, látið útbúa stórt herbergi handa honum;

þar höfðu menn áður látið matfórnina, reykelsið og áhöldin og tíund af korni, aldinlegi og olíu, hið fyrirskipaða gjald til Levíta, söngvara og hliðvarða, svo og lyftifórnir til prestanna.

En meðan alt þetta gjörðist, var eg ekki í Jerúsalem; því að á þrítugasta og öðru ríkisári Artahsasta konungs í Babel fór eg til konungsins. En að nokkurum tíma liðnum beiddist eg orlofs af konungi.

Og er eg kom til Jerúsalem, sá eg hvílíka óhæfu Eljasíb hafði gjört vegna Tobía,

SMér mislíkaði þetta stórum, og kastaði eg öllum húsgögnum Tobía út úr herberginu

og bauð að hreinsa herbergin; bar síðan aftur inn þangað áhöld Guðs musteris, matfórnina og reykelsið.

Eg komst og að því, að greiðslurnar til Levítanna höfðu eigi verið intar af hendi, svo að Levítarnir og söngvararnir, er þjónustunni áttu að gegna, voru allir flúnir út á lendur sínar.

Þá taldi eg á yfirmennina og sagði: Hvers vegna er hús Guðs yfirgefið? Og eg stefndi þeim saman og setti þá á sinn stað.

En allir Júdamenn færðu tíundina af korni, aldinlegi og olíu í forðabúrin.

Og eg skipaði yfir forðabúrin þá Selemja prest og Zadók fræðimann, og Pedaja af Levítunum, og þeim til aðstoðar Hanan Sakkúrsson, Mattanjasonar; því að þeir voru taldir áreiðanlegir og það var þeirra skylda að útdeila bræðrum sínum.

Mundu mér þetta, Guð minn, og afmá eigi góðverk mín, þau er eg hefi gjört fyrir hús Guðs míns og þjónustu hans.

Um sömu mundir sá eg í Júda menn vera að troða vínlagarþrór á hvíldardegi og flytja heim kornbundin og aðra vera að klyfja asna, og það víni, vínberjum, fíkjum og alls konar þungavöru, og koma með þá á hvíldardegi til Jerúsalem. Og eg áminti þá, þegar þeir seldu matvæli.

Og Týrusmenn, sem sezt höfðu þar að, fluttu þangað fisk og alls konar torgvöru og seldu Júdamönnum það á hvíldardögum í Jerúsalem.

Þá taldi eg á tignármenn Júda og sagði við þá: Hvílík óhæfa er það, sem þér hafið í frammi, að vanhelga hvíldardaginn!

Hafa eigi feður yðar breytt svo, og Guð vor þess vegna látið alla þessa ógæfu yfir oss dynja og yfir þessa borg? En þér aukið enn meir á reiði hans við Ísrael með því að vanhelga hvíldardaginn.

Og þegar myrkt var orðið í borgarhliðum Jerúsalem og hvíldardagur fór í hönd, þá bauð eg að loka skyldi dyrunum, og enn fremur bauð eg að eigi skyldi opna þau aftur fyr en að hvíldardeginum liðnum. Og eg setti nokkura af sveinum mínum við borgarhliðin, til þess að engin þungavara kæmi inn á hvíldardegi.

Þá náttuðu kaupmenn og þeir, er seldu alls konar torgvöru, fyrir utan Jerúsalem, einu sinni eða tvisvar.

Þá áminti eg þá og sagði við þá: Hví náttið þér úti fyrir borgarmúrunum? Ef þér gjörið það oftar, legg eg hendur á yður. Upp frá því komu þeir ekki á hvíldardegi.

Þá bauð eg Levítunum að þeir skyldu hreinsa sig og koma síðan og gæta borgarhliðanna, til þess að helga þannig hvíldardaginn. Mundu mér og þetta, Guð minn, og þyrm mér af mikilli miskunn þinni.

Um þær mundir sá eg og Júða, sem gengið höfðu að eiga konur frá Asdód eða ammónitískar eða móabitískar konur.

Og börn þeirra töluðu að hálfu leyti asdódsku eða tungu sinnar þjóðar, en kunnu ekki að tala Júda-tungu.

Og eg taldi á þá og bað þeim bölbæna, já barði nokkura af þeim og hárreytti þá, og eg særði þá við Guð: Þér skuluð ekki gifta dætur yðar sonum þeirra, né taka nokkura af dætrum þeirra til handa sonum yðar eða sjálfum yður.

Syndgaði ekki Salómó, konungur Ísraels, í þessu? Meðal allra hinna mörgu þjóða var enginn konungur slíkur sem hann, og svo elskaður var hann af Guði, að Guð gjörði hann að konungi yfir öllum Ísrael. En einnig hann teygðu útlendar konur til að syndga.

Og eigum vér nú að heyra það um yður, að þér fremjið alla þessa miklu óhæfu, að sýna Guði vorum ótrúmensku, með því að ganga að eiga útlendar konur?

Og einn af sonum Jójada, Eljasíbssonar æðsta prests, var tengdasonur Sanballats Hóroníta; fyrir því rak eg hann frá mér.

Mundu þeim það, Guð minn, að þeir hafa saurgað prestdóminn og hið heilaga heit prestdómsins og Levítanna.

Og þannig hreinsaði eg þá af öllu útlendu, og eg ákvað, hvaða þjónustu prestarnir og Levítarnir skyldu inna af hendi, hver í sínu verki,

svo og hvernig greiða skyldi viðinn á tilteknum tímum og frumgróðium. Mundu mér það, Guð minn, til góðs.