Gamla testamentiðSaga
Og höfðingjar lýðsins settust að í Jerúsalem; hinn lýðurinn varpaði hlutum, til þess að flytja einn af hverjum tíu inn, að hann tæki sér bústað í Jerúsalem, borginni helgu, en hinir níu tíundupartarnir bjuggu í borgunum.
Og lýðurinn blessaði alla þá menn, sem sjálfviljuglega réðu af að búa í Jerúsalem.
Og þessir eru höfðingjar skattlandsins, þeir er bjuggu í Jerúsalem og í Júdaborgum — þeir bjuggu í borgum sínum, hver á eignsinni: Ísrael, prestarnir, Levítarnir, musterisþjónarnir og niðjar þræla Salómós —:
Í Jerúsalem bjuggu bæði Júdamenn og Benjamínítar.
Af Júdamönnum: Ataja Ússíason, Sakaríasonar, Amarjasonar, Sefatjasonar, Mahalaleelssonar, af niðjum Perez, og Maaseja Barúksson, Kol-Hósesonar, Hasajasonar, Adajasonar, Jójaríbssonar, Sakaríasonar, sonar Sílónítans.
Allir niðjar Perez, þeir er bjuggu í Jerúsalem, voru samtals fjögur hundruð sextíu og átta vopnfærir menn.
Og þessir eru Benjamínítarnir: Sallú Mesúllamsson, Jóedssonar, Pedajasonar, Kólajasonar, Maasejasonar, Ítíelssonar, Jesajasonar,
og af eftir honum Gabbai-Sallaí, samtals níu hundruð tuttugu og átta.
Jóel Síkríson var yfirmaður þeirra, og Júda Hasnúason var annar maður æðstur yfir borginni.
Af prestunum: Jedaja, Jójaríb, Jakín;
Seraja Hilkíason, Mesúllamssonar, Zadókssonar, Merajótssonar, Ahítúbssonar, höfuðsmaður yfir musteri Guðs,
og bræður þeirra, sem önnuðust störfin við musterið, samtals átta hundruð tuttugu og tveir, og Adaja Jeróhamsson, Pelaljasonar, Amzísonar, Sakaríasonar, Pashúrssonar, Malkíasonar,
og bræður hans, ætthöfðingjar, samtals tvö hundruð fjörutíu og tveir, og Amassaí Asareelsson, Ahsaísonar, Mesillemótssonar, Immerssonar,
og bræður þeirra, dugandi menn, samtals hundrað tuttugu og átta. Yfirmaður þeirra var Sabdiel Haggedólímsson.
Og af Levítunum: Semaja Hassúbsson, Asríkamssonar, Hasabjasonar,
og Sabtaí og Jósabad, sem settir voru yfir utanhússverkin við musteri Guðs og báðir af flokki Levíta-höfðingjanna,
og Mattanja Míkason, Sabdísonar, Asafssonar, forsöngvarinn, sá er byrjaði lofsönginn við bænagjörðina, og Bakbúkja, annar maður æðstur af bræðrum hans, og Abda Sammúason, Galalssonar, Jedítúnssonar,
allir Levítarnir í borginni helgu samtals tvö hundruð áttatíu og fjórir.
Og hliðverðirnir: Akkúb, Talmón og bræður þeirra, þeir er héldu vörð við hliðin, samtals hundrað sjötíu og tveir.
En aðrir Ísraelsmenn, prestarnir og Levítarnir, bjuggu í öllum hinum borgum Júda, hver á eign sinni.
Og musterisþjónarnir bjuggu á Ófel, og Zíha og Gispa voru settir yfir musterisþjónana.
En yfirmaður Levítanna í Jerúsalem var Ússí Baníson, Hasabjasonar, Mattanjasonar, Míkasonar, af niðjum Asafs, söngvurunum við þjónustuna í musteri Guðs.
Því að konungleg skipun hafði verið gefin út um þá, og var vist gjald ákveðið handa söngvurunum, það er þeir þurftu með á degi hverjum.
Og Petaja Mesesabeelsson, einn af niðjum Sera Júdasonar, var umboðsmaður konungsins í öllu því, er lýðinn varðaði.
Að því er snertir þorpin í sveitum þeirra, þá bjuggu nokkurir af Júdamönnum í Kirjat-Arba og smáborgunum þar í kring og í Díbon og smáborgunum þar í kring og í Jekabzeel og þorpunum þar í kring.
og í Jesúa og í Mólada og í Bet-Pelet,
og í Hazar-Súal og í Beerseba og í smáborgunum þar í kring,
og í Ziklag og í Mekóna og í smáborgunum þar í kring,
og í En-Rimmon og í Zorea og í Jarmút,
Sanóa, Adúllam og þorpunum þar í kring, í Lakís og sveitunum þar í kring, í Aseka og smáborgunum þar í kring. Þeir höfðu tekið sér bólfestu frá Beerseba alt norður að Hinnómsdal.
Og Benjamínítar bjuggu alt frá Geba, í Mikmas, Aja, Betel og smáborgunum þar í kring,
í Anatót, Nób, Ananja,
Hazór, Rama, Gittaím,
Hadíd, Zebóím, Neballat,
Lód og Ónó, í Smiðadal.
Og af Levítunum bjuggu sumar Júda-deildirnar í Benjamín.