Gamla testamentiðSpámennirnir
Vei þeim, sem hugsa upp rangindi og hafa út með höndum í hvílurúmum sínum og framkvæma það, þegar ljómar af degi, jafnskjótt og þeir megna.
Langi þá út að eignast akra, þá ræna þeir þeim; eða hús, þá taka þeir þau burt. Þeir beita ofríki gegn húsbóndanum og húsi hans, gegn manninum og óðali hans.
Fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, eg bjr yfir óhamingju, sem eg mun senda þessari kynslóð og þér skuluð ekki fá af yður hrundið né gengið hnarreistir undir; því að það munu verða vondir tímar.
Á þeim degi munu menn háðkvæði um yður kveða og hetja harmatölur á þessa leið: Vér erum gjörsamlega eyðilagðir; landeign þjóðar minnar er úthlutað með mæliþræði, og enginn fær mér hana aftur. Ökrum vorum er skift milli þeirra, er oss hafa hertekið!
Fyrir því skalt þú engan hafa, er dragi mæliþráð yfir landskika í söfnuði Drottins.
»Prédikið ekki«, svo prédika þeir. »Menn eiga ekki að prédika um slíkt! Skömmunum linnir ekki!«
Hvílíkt tal, Jakobs hús! Er Drottinn óþolinmóður, eða eru gjörðir hans slíkar? Eru ekki orð hans gæzkurík við þá, sem breyta ráðvandlega?
SEn þjóð mín hefir nú þegar lengi risið upp á móti mér sem óvinur. Utan af kyrtlinum dragið þér yfirhöfnina af þeim, sem ugglausir fara um veginn, sem fráhverfir eru stríði.
Konur þjóðar minnar rekið þér út úr húsunum, sem hafa verið yndi þeirra, ræníð börn þeirra prýði minni að eilífu.
Af stað og burt með yður! Því að hér er ekki samastaður fyrir yður vegna saurgunarinnar, sem veldur tjóni, og það ólæknandi tjóni.
Ef einhver, sem færi með hégóma og lygar, hræsnaði fyrir þér og segði: Eg skal spá þér víni og áfengum drykk — það væri spámaður fyrir þessa þjóð.
Safna, já safna vil eg, Jakob, öllum þínum, færa saman leifar Ísraels eins og sauðfé í rétt, eins og hjörð í haga, og þar skal verða kliður mikill af mannmergðinni.
Forustusauðurinn fer fyrir þeim, þeir ryðjast fram, fara í gegnum hliðið og halda út um það, og konungur þeirra fer fyrir þeim og Drottinn er í broddi fylkingar þeirra. Og eg sagði: Heyrið, þér höfðingjar Jakobs og stjórnendur Ísraels húss! Er það ekki yðar að vita, hvað rétt er?