Gamla testamentiðSpámennirnir
Og eg sagði: Heyrið, þér höfðingjar Jakobs og stjórnendur Ísraels húss! Er það ekki yðar að vita, hvað rétt er?
En þeir hata hið góða og elska hið.illa, flá skinnið af mönnum og holdið af beinum þeirra.
Þeir eta hold þjóðar minnar; þeir flá skinnið af þeim og brjóta bein þeirra, hluta þau sundur eins og steik í potti, eins og kjöt á suðupönnu.
Þá munu þeir hrópa til Drottins, en hann mun ekki svara þeim, og hann mun byrgja auglit sitt fyrir þeim, þegar sá tími kemur, af því að þeir hafa ilt verk í frammi haft.
Svo mælir Drottinn til spámannanna, sem leitt hafa þjóð mína afvega, þeirra er boða hamingju meðan þeir hafa nokkuð tanna milli, en segja þeim stríð á hendur, er ekki stingur neinu upp í þá.
Fyrir því skal sú nótt koma, að þér sjáið engar sýnir, og það myrkur, að þér skuluð engu spá; sólin skal ganga undir fyrir spámönnunum og dagurinn myrkvast fyrir þeim.
Þeir, sem sjá sjónir, skulu þá blygðast sín og spásagnamennirnir fyrirverða sig; þeir munu allir hylja kamp sinn, því að ekkert svar kemur frá Guði.
Eg þar á móti er fullur af krafti, af anda Drottins, og af rétti og styrkleika, til þess að boða Jakob misgjörð hans og Ísrael synd hans.
heyrið þetta, þér höfðingjar Jakobs húss og þér stjórnendur Ísraels húss, þér sem hafið viðbjóð á réttvísinni og gjörið alt bogið, sem beint er,
þérsem byggið Zíon með manndrápum og Jerúsalem með glæpum.
Höfðingjar hennar dæma fyrir mútur og prestar hennar veita fræðslu fyrir kaup; spámenn hennar spá fyrir peninga og reiða sig í því efni á Drottin og segja: Er ekki Drottins vor á meðal? Engin ógæfa kemur yfir oss!
Fyrir því skal Zion plægð verða að akri yðar vegna og Jerúsalem verða að rúst og musterisfjallið að skógarhæðum.