Gamla testamentiðSpámennirnir
Orð Drottins, sem kom til Míka frá Móreset á dögum Jótams, Akasar og Hiskía, Júda-konunga, það er honum vitraðist um Samaríu og Jerúsalem.
Heyrið, allir lýðir! Hlusta þú, jörð, og alt sem á þér er! Og Drottinn Guð veri vottur gegn yður, Drottinn frá sínu heilaga musteri.
Því sjá, Drottinn mun út fara frá bústað sínum, mun ofan stíga og ganga eftir hæðum jarðarinnar.
Fjöllin munu bráðna undan honum og dalirnir klofna sem vax fyrir eldi, sem vatn, er steypist ofan bratta hlíð.
Og alt þetta sakir misgjörðar Jakobs og sakir syndar Ísraels húss. Hver er þá misgjörð Jakobs? Er það ekki Samaría? Og hver er synd Júda? Er það ekki Jerúsalem?
Eg gjöri því Samaríu að grjótrúst á víðavangi, að gróðurekru undir víngarða, og velti steinum hennar ofan í dalinn og læt sjást í beran grundvöllinn.
Öll skurðgoð hennar skulu sundur brotin verða og allar helgigjafir hennar í eldi brendar, og öll guðalíkneski hennar vil eg framselja til eyðingar; því að hún hefir dregið þær saman úr hórgjöldum og að hórgjöldum skulu þær aftur verða.
Vegna þess vil eg harma og kveina, ganga berfættur og skikkjulaus, telja mér harmatölur eins og sjakalarnir og halda sorgarkvein eins og strútsfuglarnir.
Því að ólæknandi eru sár hennar; já, það kemur alt til Júda, nær alt að hliðum þjóðar minnar, alt að Jerúsalem.
Segið ekki frá því í Gat; grátið ekki hátt! Veltið yður í duftinu í Betleafra!
Gangið fram smánarlega naktir, þér íbúar Safír! Íbúarnir í Zaanan voga sér ekki út; harmakveinið í Bet-Haezel aftrar yður frá að staðnæmast þar.
Því að íbúar Marót eru kvíðandi um sinn hag; já, ógæfa stígur niður frá Drottni alt að hliðum Jerúsalem.
Beitið gæðingum fyrir vagnana, þér íbúar Lakís! Það var höfuðsynd dótturinnar Zion; já, hjá yður fundust misgjörðir Ísraels.
Fyrir því verður þú að segja skilið við Móreset-Gat. Húsin í Aksíb reynast Ísraels konungum svikul.
Enn læt eg sigurvegarann yfir yður koma, þér íbúar Maresa; tignarmenni Ísraels munu komast alt til Adúllam.
Raka hár þitt og skegg vegna þinna ástfólgnu barna, gjör skalla þinn breiðan sem á gammi, því að þau verða að fara hernumin burt frá þér.