Matteusarguðspjall 4Krans-útgáfa

Matteusarguðspjall 4

Þá var Jesús leiddur af andanum út á eyðimörkina, til þess að verða freistaður af djöflinum;

og er hann hafði fastað fjörutíu daga og fjörutíu nætur, tók hann loks að hungra.

Og freistarinn kom og sagði við hann: Ef þú ert Guðs sonur, þá seg, að steinar þessir skuli verða að brauðum.

En hann svaraði og sagði: Ritað er: Maðurinn lifir ekki af brauði einu saman, heldur af sérhverju orði, sem fram gengur af Guðs munni.

Þá tekur djöfullinn hann með sér til borgarinnar helgu og setti hann á þakbrún musterisins, og segir við hann:

Ef þú ert Guðs sonur, þá kasta þér niður, því að ritað er: Hann mun bjóða englum sínum um þig og þeir munnu bera þig á höndum sér, til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.

Jesús sagði við hann: Aftur stendur ritað: Ekki skaltu freista Drottins, Guðs þíns.

Enn tekur djöfullinn hann með sér upp á ofurhátt fjall og sýnir honum öll ríki heimsins og dýrð þeirra og sagði við hann:

Alt þetta mun eg gefa þér, ef þú fellur fram og tilbiður mig.

Þá segir Jesús við hann: Vík burt, Satan; því að ritað er: Drottin, Guð þinn, átt þú að tilbiðja og þjóna honum einum.

Þá yfirgefur djöfullinn hann, og sjá, englar komu og þjónuðu honum.

En er hann heyrði, að Jóhannes hefði verið framseldur, fór hann til Galíleu.

Og hann fór burt frá Nazaret, kom og settist að í Kapernaum við vatnið í landshlutum Sebúlons og Naftalí,

til þess að rætast skyldi það, sem mælt er fyrir Jesaja spámann, er segir:

Sebúlonsland og Naftalíland fram með vatninu, landið hinumegin Jórdanar, Galílea heiðingjanna.

Sú þjóð, er í myrkri sat, hefir séð mikið ljós, og þeim, er sátu í landi og skugga dauðans, er ljós upp runnið.

Upp frá þessu tók Jesús að prédika og segja: Gjörið iðrun, því að ríki himnanna er nálægt.

En er hann gekk fram með Galíleuvatninu, sá hann bræður tvo, Símon, sem kallaður er Pétur, og Andrés, bróður hans, er voru að leggja net í vatnið, því að þeir voru fiskimenn;

og hann segir við þá: Fylgið mér, þá mun eg gjöra yður að mannaveiðurum.

Og þegar í stað yfirgáfu þeir netin og fylgdu honum.

Og er hann gekk þaðan lengra fram, sá hann aðra tvo bræður, Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróður hans, á skipi með Sebedeusi, föður þeirra, og voru þeir að bæta net sín; og hann kallaði þá.

Og þeir yfirgáfu jafnskjótt skipið og föður sinn, og fylgdu honum.

Og Jesús fór víðsvegar um alla Galíleu og kendi í samkunduhúsum þeirra og prédikaði fagnaðarboðskap ríkisins, og læknaði sérhvern sjúkdóm og sérhvern krankleika meðal lýðsins.

Og orðrómurinn um hann barst út um alt Sýrland. Og menn færðu til hans alla sjúka, menn, sem haldnir voru af ýmsum sjúkdómum og þjáningum, menn, sem þjáðust af illum öndum, tunglsjúka og lama, og hann læknaði þá.

Og mikill mannfjöldi fylgdi honum úr Galíleu og Dekapólis og Jerúsalem og Júdeu og úr landinu fyrir handan Jórdan.