Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Hversu fagrir eru fætur þínir í skónum, þú höfðingja-dóttir! Ávali mjaðma þinna er eins og hálsmen, handaverk listasmiðs,
þitt kringlótt skál, er eigi má skorta vinblönduna, kviður þinn hveitibingur, kringsettur liljum,
brjóst þín eins og tveir rádýrskálfar, skóggeitar-tvíburar.
Háls þinn er eins og fílabeinsturn, augu þín sem tjarnir hjá Hesbon, við hlið Batrabbím, nef þitt eins og Líbanonsturninn, sem veit að Damaskus.
Höfuðið á þér er eins og Karmel og höfuðhár þitt sem purpuri, — konungurinn fjötraður af lokkunum.
Hversu fögur ertu og hversu yndisleg ertu, ástin mín, í yndisnautnunum.
Vöxturinn þinn líkist pálmavið og brjóst þín vinberjum.
Eg hugsa: Eg verð að fara upp í pálmann, grípa í greinar hans. Ó að brjóst þín mættu líkjast berjum vínviðarins og ilmurinn úr nefi þínu eplum,
og gómur þinn góðu víni, sem unnusta mínum rennur liðugt niður, líðandi yfir varir og tennur.
Eg heyri unnusta mínum, og til mín er löngun hans.
Kom, unnusti minn, við skulum fara út á víðan vang, hafast við meðal kypurblómanna;
við skulum fara snemma upp Í víngarðana, sjá, hvort vínviðurinn er farinn að bruma, hvort blómin eru farin að ljúkast upp, hvort granateplatrén eru farin að blómgast; þar vil eg gefa þér ást mína.
Ástareplin auga og yfir dyrum okkar eru alls konar dýrir ávextir, — nýir og gamlir, unnusti minn, eg hefi geymt þér þá.