Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Ó að þú værir mér sem bróðir, er sogið hefði brjóst móður minnar. Hitti eg þig úti, mundi eg kyssa þig, og menn mundu þó ekki fyrirlíta mig.
Eg mundi leiða þig, fara með þig í hús móður minnar, í herbergi hennar, er mig ól. Eg mundi gefa þér kryddvín að drekka, kjarneplalög minn.
Vinstri hönd hans sé undir höfði mér, en hin hægri umfaðmi mig.
Eg særi yður, Jerúsalem-dætur: ó vekið ekki, vekið ekki elskuna, fyr en hún sjálf vill.
Hver er sú, sem kemur þarna úr heiðinni og styðst við unnusta sinn? Undir eplatrénu vakti eg þig, þar fæddi móðir þín þig með kvöl, þar fæddi með kvöl, sú er þig ól.
Legg mig sem innsiglishring við hjarta þér, sem innsiglishring við armlegg þinn. Því að elskan er sterk, eins og dauðinn, ástríðan hörð, eins og hel; blossar hennar eru eldblossar, logi hennar logi Jah.
Mikið vatn getur ekki slökt elskuna og árstraumar ekki dvekt henni. Þótt einhver vildi gefa öll auðæfi húss síns fyrir elskuna, þá mundu menn ekki gjöra annað en fyrirlíta hann.
Við eigum unga systur, sem enn er brjóstalaus. Hvað eigum við að, gjöra við systur okkar, þá er einhver kemur að Þiðja hennar?
Ef hún er múrveggur, þá reisum við á honum silfur-tind; en ef hún er hurð,; þá lokum við henni með sedrusbjálka.
Eg er múrveggur og brjóst mín eru eins og turnar; þá varð eg í augum hans eins og sú, er fann hamingjuna.
Salómó átti víngarð í Baal-Hamón; hann fékk víngarðinn varðmönnum, hver átti að greiða þúsund sikla silfurs fyrir sinn hlut ávaxtanna.
Víngarðurinn minn, sem eg á, er fyrir mig. Eig þú þúsundin, Salómó, og þeir, sem gæta ávaxtar hans, tvö hundruð.
Þú, sem býr í görðunum, vinir hlusta á rödd þína, lát mig heyra hana.
Flý þú burt, unnusti minn, og líkst þú skógargeitinni eða hindarkálfi á balsam-fjöllum.