Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Hvert er unnusti þinn genginn, þú hin fegursta meðal kvenna? Hvert hefir unnusti þinn farið, að vér megum leita hans með þér?
unnusti minn gekk ofan í garð sinn, að balsam-beðunum, til þess að skemla sér í görðunum og til að tína liljur.
Eg heyri unnusta mínum og unnusti minn heyrir mér, hann sem skemtir sér meðal liljanna.
Fögur ertu, vina mín, eins og Tirza, yndisleg eins og Jerúsalem. ægileg sem herflokkar.
Snú frá mér augum þínum, því að þau hræða mig. Hár þitt er eins og geitahjörð, sem rennur niður Gileað-fjall. S
Tennur þínar eru eins og hópur af ám, sem koma af sundi, sem allar eru tvílembdar og engin lamblaus meðal þeirra.
Þunnvangi þinn er eins og kinn á granatepli út um skýluraufina.
Sextíu eru drotningarnar og áttatíu hjákonurnar og Óteljandi ungfrúr.
ein er dúfan mín, ljúfan mín, einkabarn móður sinnar, augasteinn þeirrar, er ól hana. Meyjarnar sáu hana og sögðu hana sæla, drotningar og hjákonur, og víðfrægðu hana.
Hver er sú, sem horfir niður eins og morgunroðinn, fögur sem máninn, hrein sem sólin, ægileg sem herflokkar?
Eg hafði gengið ofan í hnol-garðinn, til þess að skoða gróðurinn í dalnum, til þess að skoða, hvort vínviðurinn væri farinn að bruma, hvort granateplatrén væru farin að blómgast.
Áður en eg vissi af, hafði löngun mín leitt mig að vögnum manna höfðingja nokkurs.
Snú þér við, snú þér við, Súlamít, snú þér við, snú þér við, svo að vér fáum séð þig! Hvað viljið þér sjá á Súlamít? er það dansinn í tvíflokknum?