Ljóðaljóðin 5Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Ljóðaljóðin 5

Eg kom í garð minn, systir mín, brúður; eg tíndi myrru mína og balsam. Eg át hunangsköku mína og hunangsseim, eg drakk vín mitt og mjólk. Etið, vinir, drekkið og gjörist ástdruknir.

Eg sef, en hjarta mitt vakir; heyr, unnusti minn drepur á dyr! Ljúk upp fyrir mér, systir mín, vina mín, dúfan mín, ljúfan mín! Því að höfuð mitt er alvott af dögg, hárlokkar mínir af dropum næturinnar.

Eg er komin úr kyrtlinum, hvernig ætti eg að fara í hann aftur, eg hefi laugað fæturna, hvernig ætti eg að óhreinka þá aftur?

Unnusti minn rétti höndina inn um gluggann, og hjarta mitt svall honum á móti.

Eg reis á fætur, til þess að ljúka upp fyrir unnusta mínum, og myrra draup af höndum mínum og fljótandi myrra af fingrum mínum á handfang slárinnar.

SEg lauk upp fyrir unnusta mínum, en unnusti minn var farinn, horfinn. Eg stóð á öndinni meðan hann talaði. Eg leitaði hans, en fann hann ekki; eg kallaði á hann, en hann svaraði ekki.

Verðirnir, sem ganga um borgina, hittu mig; þeir slógu mig, þeir særðu mig; verðir múranna sviftu slæðunum af mér.

Eg særi yður, Jerúsalem-dætur: þegar þér finnið unnusta minn, hvað ætlið þér þá að segja honum? — að eg sé sjúk af ást!

Hvað hefir unnusti þinn fram yfir aðra unnusta, þú hin fegursta meðal kvenna? Hvað hefir unnusti þinn fram yfir aðra unnusta, úr því þú særir oss svo?

Unnusti minn er mjallahvítur og rauður, ber af tíu þúsundum.

Höfuð hans er skíragull, hinir hrynjandi hárlokkar hans hrafnsvartir;

augu hans eins og dúfur við vatnslæki, baðandi sig í mjólk, sett í umgjörð;

kinnar hans eins og balsam-beð, er Í vaxa kryddjurtir; varir hans eru liljur, drjúpandi af fljótandi myrru;

hendur hans eru gullkefli, sett krýsolitsteinum, kviður hans listaverk af filabeini, lagt safírum;

fótleggir hans eru marmarasúlur, sem hvíla á undirstöðum úr skíragulli, ásýndar er hann sem Líbanon, frábær eins og sedrustré;

sómur hans er sætleikur, og allur er hann yndislegur. Þetta er unnusti minn og þetta er vinur minn, þér Jerúsalem-dætur.