Þá urðu Ísraelsmenn, sem bjuggu í Júdalandi, mjög hræddir við hann, er þeir heyrðu þetta.
Ógn og skelfing greip huga þeirra, að hann mundi gjöra Jerúsalem og musteri Drottins hið sama og hann hafði gjört öðrum borgum og musterum þeirra.
Og þeir sendu um alla Samaríu umhverfis, alt til Jeríkó, og tóku alla fjallatinda,
og þeir hlóðu múra um þorp sín og söfnuðu korni til vista í ófriðinum.
Og Elíakím prestur ritaði öllum þeim, sem bjuggu gegnt Esdrelon, sem veit að hinni miklu sléttu hjá Dótaín, og öllum þeim, sem leið mátti liggja um, að þeir skyldu taka fjallvegina, sem nokkur leið mátti vera um til Jerúsalem, og halda vörð, þar sem vegurinn var þröngur milli fjallanna.
Og Ísraelsmenn gjörðu eins og Elíakím, prestur Drottins, hafði fyrir þá lagt.
Og allur lýðurinn hrópaði til Drottins af mikilli alvöru, og þeir lægðu sálir sínar í föstum og bænum, bæði þeir og konur þeirra.
Og prestarnir klæddust hærusekkjum, og þeir létu ungbörnin liggja flöt frammi fyrir musteri Drottins, og altari Drottins huldu þeir hærusekk.
Og þeir hrópuðu til Drottins, Guðs Ísraels, einum huga, að börn þeirra yrðu eigi að herfangi og konur þeirra eigi burt fluttar og borgir þeirra eigi eyddar og helgidómar þeirra eigi vanhelgaðir, og að þeir yrðu eigi heiðingjunum að háði.
Þá gekk Elíakím, æðsti prestur Drottins, um allan Ísrael og talaði til þeirra
og sagði: „Vitið, að Drottinn mun heyra bænir yðar, ef þér haldið stöðuglega áfram í föstum og bænum frammi fyrir Drottni.
Minnist Móse, þjóns Drottins, sem sigraði Amalek, er treysti á sinn eigin styrk og á mátt sinn og á her sinn og á skjöldu sína og á vagna sína og á riddara sína — eigi með því að berjast með sverði, heldur með heilögum bænum.
Svo mun fara fyrir öllum óvinum Ísraels, ef þér haldið stöðuglega áfram þessu verki, sem þér hafið byrjað.“
Og þeir, hrærðir af þessari áminningu hans, báðu til Drottins og héldu áfram frammi fyrir Drottni,
svo að jafnvel þeir, sem færðu Drottni brennifórnirnar, færðu Drottni fórnirnar gyrtir hærusekkjum og með ösku á höfði sér.
Og þeir báðu allir Guð af öllu hjarta sínu, að hann vitjaði lýðs síns Ísraels.