Gamla testamentiðSaga
Og allur söfnuður Ísraelsmanna safnaðist saman í Síló, og reistu þeir þar samfundatjaldið, enda höfðu þeir nú lagt landið undir sig.
En enn þá voru eftir sjö ættkvíslir meðal Ísraelsmanna, Sem eigi höfðu skift arfleifð sinni.
Jósúa sagði þá við Ísraelsmenn: Hversu lengi ætlið þér að vera svo tómlátir, að fara ekki og taka til eignar land það, sem Drottinn, Guð feðra yðar, hefir gefið yður.
Veljið bú þrjá menn af ættkvísl hverri, og mun eg senda þá út; skulu þeir halda af stað og fara um landið og skrifa það upp með tilliti til þess, íb því á að skifta meðal þeirra; skulu þeir síðan koma aftur til mín. ví næst skulu þeir skifta því í sjö hluti. Júda skal halda sínu landi í suðri og hús Jósefs skal halda sínu landi í norðri.
Því næst skulu þeir skifta því í sjö hluti. Júda skal halda sínu landi í suðri og hús Jósefs skal halda sínu landi í norðri.
En þér skuluð skrifa landið upp í sjö hluti og færa mér hingað, síðan mun eg varpa hlutum fyrir yður hér frammi fyrir augliti Drottins, Guðs vors.
Því að Levítarnir fá eigi hlut meðal yðar, heldur er prestdómur Drottins óðal þeirra. En Gað og Rúben og hálf ættkvísl Manasse hafa fengið sinn erfðahluta hinumegin Jórdanar, austanmegin, þann er Móse, þjónn Drottins, gaf þeim.
Þá tóku mennirnir sig upp og héldu af stað, og Jósúa bauð þeim, er fóru, að skrifa upp landið, og mælti: Farið nú og ferðist um landið skrifið það upp, komið síðan aftur til mín; mun eg þá varpa hlutum fyrir yður hér frammi fyrir Drottni í Síló.
Og mennirnir héldu af stað og fóru um landið og skrifuðu það upp í bók eftir borgunum í sjö hluti; síðan komu þeir til Jósúa í herbúðirnar í Síló.
Og Jósúa Varpaði hlutum fyrir þá í Síló frammi fyrir Drottni, og Jósúa skifti þar landinu meðal Ísraelsmanna eftir skiftingu þeirra.
Kom nú upp hlutur kynkvíslar Benjamíns sona eftir ættum þeirra, og lá land það, er þeim hlotnaðist, milli Júda sona og Jósefs sona.
Landamerki þeirra að norðanverðu lágu frá Jórdan og upp á hálsinn fyrir norðan Jeríkó, og þaðan vestur á fjöllin og alla leið til eyðimerkurinnar hjá Betaven.
Þaðan lágu landamerkin yfir til Lús, yfir á hálsinn fyrir sunnan Lús, það er Betel; þaðan lágu landamerkin niður til Aterót-Addar, yfir á fjallið, sem er fyrir sunnan Bet-Hóron neðri.
Þá beygðust landamerkin við og lágu í suðvestur frá fjallinu, sem er fyrir sunnan Bet-Hóron, og lágu alla leið til Kirjat-Baal, það er Kirjat-Jearím, borg Júda sona; þetta voru vesturtakmörkin.
Suðurtakmörkin lágu frá útjaðrinum á Kirjat-Jearím og lágu þau í vestur og gengu út að Neftóa-vatnslind.
Þá lágu landamerkin niður að enda fjallsins, sem liggur andspænis Hinnomssonardal og norðanvert í Refaím-dal, þaðan niður Hinnomsdal að Jebúsíta-öxl sunnanverðri og þaðan niður að Rógel-lind.
Þaðan beygðust þau norður á við og lágu til En-Semes og þaðan til Gelílót, sem liggur þar gegnt sem upp er gengið til Adúmmím, þaðan niður til steins Bóhans, Rúbenssonar,
þaðan yfir á hálsinn, sem liggur gegnt Araba norðanvert, og þaðan niður til Araba.
Þaðan lágu landamerkin norðan fram með hálsinum hjá Bet-Hogla og alla leið að nyrztu vík Saltasjós, þar sem Jórdan fellur suður í hann. Þetta voru suðurtakmörkin.
En að austanverðu réð Jórdan mörkum. Þessi voru landamærin hringinn í kring um arfleifð Benjamíns, eftir ættum þeirra.
En borgir kynkvíslar Benjamíns sona, eftir ættum þeirra, voru: Jeríkó, Bet-Hogla, Emek-Kezíz,
Bet-Araba, Zemaraím, Betel,
Avím, Para, Ofra,
Kefar-Ammóní, Ofni og Geba — tólf borgir og þorpin, er að liggja,
Gíbeon, Rama, Beerót,
Mizpe, Kefíra, Móza,
Rekem, Jirpeel, Tarala,
Zela, Elef, Jebúsítaborg, það er Jerúsalem, Gibeat og Kirjat — fjórtán borgir og þorpin, er að liggja. Þetta var arfleifð Benjamíns sona eftir ættum þeirra. Land hinna ættkvíslanna sex.