Gamla testamentiðSaga
Og kynkvísl Manasse fékk sinn hlut, því að hann var frumgetningur Jósefs; Makír, frumgetningur Manasse, faðir Gíleaðs, fékk Gíleað og Basan, því að hann var bardagamaður.
Og hinir synir Manasse fengu sinn hluta eftir ættum þeirra: synir Abíesers, synir Heleks, synir Asríels, synir Sekems, synir Hefers og synir Semída. Þessir voru synir Manasse Jósefssonar í karllegginn, eftir ættum þeirra.
En Zelofhað Hefersson, Gíleaðssonar, Makírssonar, Manassesonar, átti enga sonu, heldur dætur einar, og hétu þær Mahla, Nóa, Hogla, Milka og Tirza.
Þær gengu fyrir Eleasar prest, Jósúa Núnsson og höfuðsmennina og sögðu: Drottinn bauð Móse að gefa oss óðal meðal bræðra vorra. Gaf hann þeim þá eftir boði Drottins óðal meðal bræðra föður þeirra.
Komu þá tíu hlutir á Manasse — auk Gíleað-lands og Basans, sem liggja hinumegin Jórdanar —,
með því að dætur Manasse fengu óðal meðal sona hans; en Gíleað-land fengu hinir synir Manasse.
En landamerki Manasse lágu frá Asser til Mikmetat, sem liggur fyrir austan Sikem; þaðan lágu landamærin tl hægri, til þeirra sem bjuggu í En-Tappúa.
Tappúa-sveit fékk Manasse, en Tappúa-borg, sem lá við takmörk Manasse, fengu Efraíms synir.
Þá lágu landamerkin niður að Kana-læk, fyrir sunnan lækinn; þessar borgir heyra Efraím mitt á meðal borga Manasse; þaðan lágu landamerki Manasse norðan með læknum og alla leið til sjávar.
Það, sem var að sunnanverðu, átti Efraím, en það, sem var að norðanverðu, átti Manasse, og hafið réð takmörkum hans. Að norðanverðu lágu lönd þeirra að Asser og að austanverðu að íssakar.
En í íssakar og Asser fékk Manasse: Bet-Sean og smáborgirnar, er að liggja, Jibleam og smáborgirnar, er að liggja, íbúana í Dór og smáborgirnar, er að liggja, íbúana í Endór og smáborgirnar, er að liggja, íbúana í Taanak og smáborgirnar, er að liggja, og íbúana í Megiddó og smáborgirnar, er að liggja, — hæðirnar þrjár.
En ekki gátu Manasse synir stökt íbúum þessara borga burt, og þannig fengu Kanaanítar haldið bústað í landi þessu.
En þegar Ísraelsmenn efldust, gjörðu þeir Kanaaníta sér vinnuskylda, en ráku þá ekki algjörlega burt.
Þá báru Jósefs synir sig upp við Jósúa og sögðu: Hví hefir þú ekki gefið mér nema eitt hlutskifti og einn hlut að óðali, og er eg þó fjölmennur, þar sem Drottinn hefir blessað mig alt til þessa?
En Jósúa sagði við þá: Ef þú ert orðinn svo fjölmennur, þá far þú upp í skóginn og ryð þér þar til bólstaða í landi Peresíta og Refafla, ef of þröngt er orðið um þig á Efraím-fjöllum.
Þá sögðu Jósefs synir: Fjalllendið nægir oss eigi, því að allir Kanaanítar, þeir er á sléttlendinu búa, hafa járnvagna, bæði þeir sem búa í Bet-Sean og þorpunum, er að liggja, og þeir sem búa á Jesreel-sléttunni.
Þá sagði Jósúa við hús Jósefs, við Efraím og Manasse: Þú ert orðinn fjölmennur og styrkur þinn er mikill; þú skalt fá meira en einn erfðahluta;
því að fjalllendið skal vera þitt; ef það er skógi vaxið, þá verður þú að ryðja hann; þá munt þú og eignast fjalladrögin. Því að þú verður að reka Kanaanítana burt, fyrst þeir hafa járnvagna og fyrst þeir eru sterkir.