Jósúabók 16Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Jósúabók 16

Síðan kom upp hlutur Jósefs sona og hlutu þeir land austan frá Jórdan, gegnt Jeríkó, til Jeríkó-vatna, eyðimörkina, sem liggur frá Jeríkó upp á Betelfjöll.

Frá Betel lágu landamerkin til Lús, þaðan yfir til lands Arkíta, til Atarót,

þaðan ofan á við og í vestur, til lands Jafletíta, að landamærum Bet-Hóron neðri og alt til Geser, og þaðan alla leið til sjávar.

Og synir Jósefs, Manasse og Efraím, fengu óðal sitt.

Og þetta var land Efraíms sona, eftir ættum þeirra: Takmörk ættaróðals þeirra voru að austan Aterót-Addar til Bet-Hóron efri;

og takmörkin lágu út að hafi; að norðan var Mikmetat; þaðan beygðu landamerkin af austur á við til Taanat-Síló og þar fram hjá austur fyrir Janóha.

En frá Janóha lágu þau ofan á við til Atarót og Naarat, lentu hjá Jeríkó og lágu þaðan að Jórdan.

Frá Tappúa lágu landamerkin í vestur til Kana-lækjar og þaðan alla leið til sjávar. Þetta er óðal kynkvíslar Efraíms sona, eftir ættum þeirra;

auk þess borgirnar, sem skildar voru frá handa Efraíms sonum í ættaróðali Manasse sona — allar borgirnar og þorpin, er að lágu.

En ekki ráku þeir burt Kanaanítana, sem bjuggu í Geser; fyrir því búa Kanaanítar meðal Efraíms fram á þennan dag, og urðu vinnuskyldir þrælar.