Gamla testamentiðSaga
En hlutur sá, er kynkvísl Júda sona fékk eftir ættum þeirra, lá að landamærum Edóms, suður undir Zín-eyðimörku, syðst Í landinu.
Og suðurtakmörkin að landi þeirra voru frá enda Saltasjós, frá víkinni, er snýr til suðurs,
og lágu fyrir sunnan Sporðdrekaskarð og yfir til Zín og upp eftir fyrir sunnan Kades-Barnea og yfir til Hezron, þaðan upp til Adar og því næst í boga til Karka;
þaðan lágu þau yfir til Azmón og alla leið til Egiptalandsár, og síðast lágu takmörkin til sjávar; þetta skulu vera landamerki yðar að sunnanverðu.
Landamerkin að austanverðu voru Saltisjór alt til þess er Jórdan fellur í hann; en takmörkin að norðanverðu lágu frá nyrztu vík vatnsins, þar sem Jórdan fellur í það.
Þaðan lágu takmörkin upp til Bet-Hogla og fram hjá Bet-Araba að norðanverðu og þaðan upp til steins Bóhans, Rúbenssonar.
Þá lágu takmörkin upp til Debír úr Akor-dal, þaðan í norður til Gilgal, sem liggur þar gegnt sem upp er gengið til Adúmmím, sem er sunnanvert við lækinn; þaðan lágu takmörkin yfir til En-Semes-vatns og þaðan alla leið að Rógel-lind.
Þaðan lágu landamerkin upp til Hinnomssonar-dals, að Jebúsíta-öxl sunnanverðri; þar heitir nú Jerúsalem; þaðan lágu landamerkin upp á fjallstindinn, sem er beint í vestur frá Hinnomsdal og við norðurendann á Refaímdal.
Frá fjallstindinum beygðust landamerkin til Neftóavatnslindar og lágu þaðan til borganna á Efronfjalli; þaðan beygðust landamerkin til Baala; þar heitir nú Kirjat-Jearím.
Frá Baala lágu Landamerkin í boga vestur til Seírfjalls og þaðan yfir að öxl Jearímfjalls norðanverðri; það er Kesalon; og þaðan ofan til Bet-Semes og yfir til Tímna.
Þá lágu landamerkin norður til Ekron-axlar; þaðan beygðust þau til Síkrón og yfir til Baala-fjalls og alla leið til Jabneel, og síðast lágu takmörkin til sjávar.
En vesturtakmörkunum réð hafið mikla alla leið. Þetta voru landamerki Júda sona hringinn Í kring, eftir ættum þeirra.
En Kaleb Jefúnnesyni gaf hann hlut meðal Júda sona, eins og Drottinn hafði boðið Jósúa, sem sé borg Arba, föður Anaks; það er Hebron.
Og Kaleb rak þaðan þrjá sonu Anaks: Sesaí, Ahíman og Talmaí, afkomendur Anaks,
Þaðan fór hann móti Debir-búum; en Debir hét áður Kirjat-Sefer.
Og Kaleb sagði: Hver sem leggur Kirjat-Sefer undir sig og vinnur hana, honum skal eg gefa Aksa dóttur mína að konu.
Þá vann Otníel Kenasson, bróðir Kalebs, borgina, og hann gaf honum Aksa dóttur sína að konu.
Þegar hún skyldi heim fara með bónda sínum, eggjaði hún hann þess, að hann skyldi beiðast lands nokkurs af föður hennar. Steig hún þá niður af asnanum. Kaleb spurði hana þá: Hvað viltu?
Hún svaraði: Gef mér gáfu nokkura, af því að þú hefir gefið mig til suðurlandsins; gef mér því vatnsbrunna! Gaf hann henni þá brunna hið efra og brunna hið neðra.
Þetta er óðal kynkvíslar Júda sona, eftir ættum þeirra.
En syðstu borgirnar í kynkvísl Júda sona, við landamæri Edóms, í suðurlandinu, voru: Kabzeel, Eder, Jagúr,
Kína, Dímóna, Adada,
Kedes, Hazór og Jitnan;
Sif, Telem, Bealót,
Hazór-Hadatta og Keríjót-Hezron; það er Hazór;
Amam, Sema, Mólada,
Hazar-Gadda, Hesmon, Bet-Pelet,
Hazar-Súal, Beerseba og Bisjótja;
Baala, Ijím, Ezem,
Eltólað, Kesil, Horma,
Ziklag, Madmanna, Sansanna,
Lebaót, Silhím, Aín og Rimmon, alls tuttugu og níu borgir og þorpin, er að liggja.
Á láglendinu: Estaól, Zorea, Asna,
Sanóa og En-Ganním, Tappúa og Enam,
Jarmút og Adúllam, Sókó, Aseka,
Saaraím, Adítaím, Gedera og Gederótaím — fjórtán borgir og þorpin, er að liggja.
Enn fremur Zenan, Hadasa, Migdal-Gað;
Dílean, Mizpe og Jokteel;
Lakís, Bozkat, Eglon,
Kabbón, Lahmas, Kitlís
og Gederót; Bet-Dagón, Naama og Makeda — sextán borgir og þorpin, er að liggja.
Enn fremur Líbna, Eter, Asan,
Jifta, Asna, Nezib,
Kegíla, Aksíb og Maresa — níu borgir og þorpin, er að liggja.
Ekron með smáborgum hennar og þorpum.
Frá Ekron og vestur að hafi alt það, sem er á hlið við Asdód, og þorpin, er að liggja,
Asdód með smáborgum hennar og þorpum, Gaza með smáborgum hennar og þorpum, alt til Egiptalandsár, en vesturtakmörkum réð hafið mikla.
En í fjalllendinu: Samír, Jattir, Sókó,
Danna, Kirjat-Sanna, það er Debír,
Anab, Estemó, Aním,
Gósen, Hólon og Gíló — ellefu borgir og þorpin, er að liggja.
Enn fremur Arab, Dúma, Esean,
Janúm, Bet-Tappúa, Afeka,
Húmta, Kirjat-Arba, það er Hebron, og Zíór — níu borgir og þorpin, er að liggja.
Enn fremur Maon, Karmel, Sif, Júta,
Jesreel, Jokdeam, Sanóa,
Kaín, Gíbea og Tímna — tíu borgir og þorpin, er að liggja.
Enn fremur Halhúl, Bet-Zúr, Gedór,
Maarat, Bet-Anót og Eltekón — sex borgir og þorpin, er að liggja.
Enn fremur Kirjat-Baal, það er Kirjat-Jearím, og Rabba — tvær borgir og þorpin, er að liggja.
Í eyðimörkinni: Bet-Araba, Middín, Sekaka,
Nibsan, Saltborgin og Engedí — sex borgir og þorpin, er að liggja.
En Jebúsítana, sem bjuggu í Jerúsalem, gátu Júda synir ekki rekið burt; fyrir því hafa Jebúsítar búið í Jerúsalem ásamt Júda sonum fram á þennan dag.