Gamla testamentiðSaga
Og þetta er það, sem Ísraelsmenn fengu að arfleifð í Kanaanlandi, það sem Eleasar prestur, Jósúa Núnsson og ætthöfðingjar kynkvísla Ísraelsmanna úthlutuðu þeim
með hlutkesti til arfleifðar, eins og Drottinn hafði skipað fyrir Móse um níu kynkvíslirnar og hálfa.
Því að Móse hafði gefið tveimur kynkvíslunum og hálfri óðul hinumegin Jórdanar, en Levítunum hafði hann eigi gefið óðal meðal þeirra.
Því að Jósefs synir voru tvær kynkvíslir, Manasse og Efraím, og Levítunum gáfu þeir ekki hlut í landinu, heldur aðeins borgir til að búa í og beitilandið, er lá undir þær, handa fénaði þeirra og skepnum.
Eins og Drottinn hafði boðið Móse, svo gjörðu Ísraelsmenn og skiftu landinu.
Þá gengu Júda synir fyrir Jósúa í Gilgal, og Kaleb Jefúnneson, Kenisíti, sagði við hann: Þér er kunnugt um, hvað Drottinn sagði við guðsmanninn Móse um mig og þig í Kades-Barnea.
Þá var eg fertugur að aldri, er Móse, þjónn Drottins, sendi mig frá Kades-Barnea að kanna landið, og bar eg honum það, er eg vissi sannast.
En bræður mínir, sem með mér fóru, skelfdu hjörtu lýðsins, en eg fylgdi Drottni, Guði mínum, trúlega.
Og þann dag sór Móse og sagði: Sannlega skal land það, sem þú steigst fæti á, vera þín eign og sona þinna æfinlega, því að þú fylgdir Drottni, Guði mínum, trúlega.
Og sjá, nú hefir Drottinn látið mig lifa, eins og hann lofaði, í þessi fjörutíu og fimm ár, síðan Drottinn sagði þetta við Móse, meðan Ísrael hefir farið um eyðimörkina; og sjá, nú hefi eg fimm um áttrætt.
Og enn í dag er eg eins hraustur og þegar Móse sendi mig; orka mín er enn hin sama og hún var þá til að berjast og til að ganga út og inn.
Gef mér nú fjallendi þetta, sem Drottinn talaði um þann dag, — því að þú hlýddir sjálfur á þann dag. Því að Anakítar eru þar og stórar, víggirtar borgir. Vera má að Drottinn veiti mér fulltingi, svo að eg fái stökt þeim burt, eins og Drottinn hefir heitið.
Og Jósúa blessaði hann og gaf Kaleb Jefúnnesyni Hebron að arfleifð.
Fyrir því fékk Kaleb Jefúnneson, Kenisíti, Hebron að arfleifð, og er svo enn í dag, sökum þess að hann fylgdi Drottni, Ísraels Guði, trúlega.
En Hebron hét áður Kirjat-Arba, eftir Arba þeim er mestur var meðal Anakíta. Eftir það létti ófriði af landinu.