Gamla testamentiðSaga
Þegar Jósúa var orðinn gamall og hniginn að aldri, sagði Drottinn við hann: Þú ert orðinn gamall og hniginn að aldri, en mjög mikið af landinu er enn óunnið.
Þetta er landið, sem enn er eftir: Öll héruð Filista og alt land Gesúra;
frá Síhór, sem rennur fram með Egiptalandi að austanverðu, til landamæra Ekron í norðri — það telst með landi Kanaaníta —, fimm höfðingjar Filistanna í Gasa, Asdód, Askalon, Gat og Ekron, svo og Avítar í suðri;
enn fremur alt land Kanaaníta og Meara, sem heyrir Zídoningum, alt til Afek, til landamæra Amóríta,
og land Giblíta og allur Líbanon í austri, frá Baal-Gað undir Hermonfjalli alt þangað, er leið liggur tbl Hamat.
Allir fjallabúarnir frá Líbanon tl Misrefót-Majím, allir Zidoningar; eg mun stökkva þeim burt undan Ísraelsmönnum; en þú legg á hluti og skift því meðal Ísraels til eignar, eins og eg hefi boðið þér.
TSkift þú nú landi þessu til eignar níu ættkvíslunum og hálfri ættkvísl Manasse.
SMeð henni hafa Rúbenitar og Gadítar fengið sinn eignarhluta, er Móse gaf þeim hinumegin Jórdanar, austanmegin, eins og Móse, þjónn Drottins, gaf þeim hann,
frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og borginni, sem liggur í dalnum miðjum og alt sléttlendið — Medeba til Díbon —,
svo og allar borgir, er átti Síhon, Amóríta konungur, er sat í Hesbon, alt til landamæra Ammóníta;
enn fremur Gileað og land Gesúra og Maakatíta, Hermonfjöll öll og alt Basan tl Salka,
alt konungsríki Ógs í Basan, sem sat í Astarót og Edrei. Hann var einn eftir af Refaítum; en Móse vann sigur á þeim og stökti þeim burt.
Aftur á móti stöktu Ísraelsmenn Gesúrum og Maakatítum ekki burt, heldur búa Gesúrar og Maakatítar meðal Ísraels alt fram á þennan dag.
En ættkvísl Leví gaf hann ekkert óðal; eldfórnir Drottins, Ísraels Guðs, eru óðal hans, eins og hann hét honum.
Og Móse fékk kynkvíslum Rúbens sona land eftir ættum þeirra;
fengu þeir land frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og frá borginni, sem liggur í dalnum miðjum, og alt sléttlendið hjá Medeba,
Hesbon og allar borgirnar þar umhverfis, sem liggja á sléttlendinu, Dibon, Bamót-Baal, Bet-Baal-Meon,
Jahza, Kedemót, Mefaat,
Kirjataím, Síbma, Zeret-Sahar á fellinu í dalnum,
og Bet-Peór, Pisgahlíðar og Bet-Jesímót,
enn fremur allar borgir á sléttlendinu og alt konungsríki Síhons, Amóríta konungs, sem sat í Hesbon og Móse vann sigur á ásamt höfðingjum Midíanita: Eví, Rekem, Zúr, Húr og Reba, jörlum Síhons, sem bjuggu í landinu.
Ísraelsmenn drápu og spásagnamanninn Bíleam Beórsson með sverði, auk annara, er þeir feldu.
Og vesturtakmörkum Rúbens sona réð Jórdan alla leið. Þetta er óðal Rúbens sona eftir ættum þeirra, borgirnar og þorpin, sem að liggja.
Og Móse fékk kynkvísl Guðs, Guðs sonum, land eftir ættum þeirra;
fengu þeir land sem hér segir: Jaser og allar borgirnar Í Gíleað og hálft land Ammóníta, alt til Aróer, sem liggur fyrir austan Rabba,
og frá Hesbon til Ramat-Mizpe og Betóním, og frá Mahanaím til Lídebir landamæra.
Enn fremur í dalnum: Bet-Haram, Bet-Nimra, Súkkót og Zafón, leifarnar af konungsríki Síhons, konungs í Hesbon, og Jórdan á mörkum alt að suðurenda Kinneret-vatns, austanmegin Jórdanar.
Þetta er óðal Gaðs sona eftir ættum þeirra, borgirnar og þorpin, er að liggja.
Og Móse fékk hálfri ættkvísl Manasse land; fékk hálf kynkvísl Manasse sona land eftir ættum sínum sem hér segir.
Og land þeirra háði frá Mahanaím yfir alt Basan, alt konungsríki Ógs, konungs Í Basan, og öll Jairs-þorp, sem liggja í Basan, sextíu borgir;
enn fremur yfir hálft Gíleað og Astarót og Edreí, höfuðstaði konungsríkis Ógs í Basan. Þetta fengu Makírs synir, Manassesonar, helmingurinn af Makírs sonum eftir ættum þeirra.
Basan. Þetta fengu Makirs synir, Manassesonar, helmingurinn af Makírs sonum eftir ættum þeirra.
Þetta voru lönd þau, er Móse útJdutaði á Móabs-völlum hinumegin Jórdanar gegnt Jeríkó, austanmegin. En ættkvísl Leví gaf Móse ekkert óðal; Drottinn, Ísraels Guð, er óðal þeirra, eins og hann hefir heitið þeim. Arfleifð Kalebs.