Gamla testamentiðSaga
Þessir eru konungar landsins, þeir er Ísraelsmenn unnu sigur á og tóku lönd af hinumegin Jórdanar, austanmegin, frá Arnoná til Hermonfjalls og alt sléttlendið austanmegin:
Síhon, Amóríta konungur, sem bjó í Hesbon og réð landi frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og dalnum miðjum og hálfu Gíleað að Jabboká, sem er á landamærum Ammóníta,
og sléttlendinu að Kínerótvatni að austanverðu og að vatninu á sléttlendinu, Saltasjó, að austanverðu, suður undir Bet-Jesímót, og til suðurs að Pisga-hlíðum.
Sömuleiðis land Ógs, konungs í Basan, sem var einn þeirra Refaíta, er eftir voru, og bjó í Astarót og Edreí
og réð yfir Hermonfjöllum, Salka og öllu Basan, að landaMærum Gesúra og Maakatíta, og yfir hálfu Gíleað, að landamærum Síhons, konungs í Hesbon.
Móse, þjónn Drottins, og Ísraelsmenn höfðu Unnið sigur á þeim, og Móse, þjónn Drottins, hafði gefið Rúbenítum, Gadítum og hálfri ættkvísl Manasse landið til eignar.
Og þessir eru konungar landsins, þeir er Jósúa og Ísraelsmenn unnu sigur á fyrir vestan Jórdan, frá Baal-Gað í Líbanonsdal til Skallabergs, sem liggur upp til Seír — en landið gaf Jósúa ættkvíslum Ísraels til eignar eftir skiftingu þeirra —
í fjalllendinu, á láglendinu, á sléttlendinu, í fjallahlíðunum, í eyðimörkinni og í suðurlandinu, — land Hetíta, Amoríta, Kanaaníta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta:
konungurinn í Jeríkó einn, konungurinn í Aí, sem er hjá Betel, einn,
konungurinn í Jerúsalem einn, konungurinn í Hebron einn,
konungurinn í Jarmút einn, konungurinn í Lakís einn,
konungurinn í Eglon einn, konungurinn í Geser einn,
konungurinn í Debír einn, konungurinn í Geder einn,
konungurinn í Horma einn, konungurinn í Arad einn,
konungurinn í Líbna einn, konungurinn í Adúllam einn,
konungurinn í Makeda einn, konungurinn í Betel einn,
konungurinn í Tappúa einn, konungurinn í Hefer einn,
konungurinn í Afek einn, konungurinn í Saron einn,
konungurinn í Madón einn, konungurinn í Hazór einn,
konungurinn í Simrón-Meróm einn, konungurinn í Aksaf einn,
konungurinn í Taanak einn, konungurinn í Megíddó einn,
konungurinn í Kedes einn, konungurinn í Jokneam hjá Karmel einn,
konungurinn í Dór í Dórshæðum einn, konungur heiðingjanna í Gilgal einn,
konungurinn í Tirza einn, — alls þrjátíu og einn konungur.