Gamla testamentiðSaga
Þá kom næst upp hlutur Símeons, kynkvíslar Símeons sona eftir ættum þeirra; en arfleið þeirra lá inni í arfleið Júda sona miðri.
En þeir fengu að arfleifð: Beerseba og Seba, Mólada,
HazarSúal, Bala, Ezem,
Eltólað, Betúl, Horma,
Ziklag, Bet-Markabót, Hazar-Súsa,
Bet-Lebaót og Sarúhen — þrettán borgir og þorpin, er að liggja.
Aín, Rimmon, Eter og Asan — fjórar borgir og þorpin, er að liggja,
auk þess öll þau þorp, er lágu kring um borgir þessar alt til Baalat-Beer, Rama suðurlandsins. Þetta var arfleifð kynkvíslar Símeons sona, eftir ættum þeirra.
Arfleifð Símeons sona var nokkur hluti af landshluta Júda sona; því að hluti Júda sona var of stór fyrir þá, og fyrir því fengu Símeons synir arfleifð í miðri arfleifð þeirra.
Þá kom upp þriðji hluturinn; það var hlutur Sebúlons sona eftir ættum þeirra, og náðu landamerki arfleifðar þeirra alt til Saríd.
Og landamerki þeirra lágu í vestur upp til Marafa, þaðan út til Dabbeset og lentu hjá læknum, sem rennur fyrir austan Jokneam.
Til austurs aftur á móti, gegn upprás sólar, lágu þau frá Saríd til landamæra Kíslót-Tabors, þaðan til Daberat og þaðan upp til Jafía.
Þaðan lágu þau í austur, mót upprás sólar, yfir til Gat-Hefer, til ElKazín, síðan til Rimrnon, sem nær alt til Nea.
Og landamerkin beygðu þar við, norður til Hannatón, og alla leið til Jifta-El-dals.
.... Katat, Nabalal, Simron, Jidala og Betlehem — tólf borgir og þorpin, er að liggja.
Þetta var arfleifð Sebúlons sona, eftir ættum þeirra: papa borgir og þorpin, er að liggja.
Þá kom upp fjórði hluturinn; það var hlutur Íssakars, Íssakars sona eftir ættum þeirra.
Og land þeirra tók yfir: Jesreel, Kesúllót, Súnem,
Hafaraím, Síón, Anaharat,
Rabbit, Kisjon, Ebez,
Remet, En-Ganním, En-Hadda og Bet-Pazzez.
Og landamerkin náðu til Tabor, Sahazíma og Bet-Semes, og alla leið til Jórdanar — sextán borgir og þorpin, er að liggja.
Þetta var arfleifð kynkvíslar íssakars sona eftir ættum þeirra, borgirnar og þorpin, er að liggja.
Þá kom upp fimti hluturinn; það var hlutur kynkvíslar Assers sona, eftir ættum þeirra.
Og land þeirra tók yfir: Helkat, Hafi, Beten, Aksaf,
Allammelek, Amead og Míseal, og þau náðu vestur að Karmel og Síhór-Libnat.
Þaðan lágu þau í austur til Bet-Dagón, og náðu að Sebúlon og Jifta-El-dal í norðri, Bet-Emek og Negiel, og lágu norður til Kabúl,
Ebron, Rehób, Hammon og Kana, alt til hinnar miklu Zídon.
Þaðan beygðust landamerkin til Rama og alt til hinnar víggirtu borgar Týrus, og þaðan aftur til Hósa og þaðan alla Leið til sjávar, frá því er Aksib-héraði sleppir.
Auk þess Akkó, Afek og Rehób — tuttugu og tvær borgir og þorpin, er að liggja.
Þetta var arfleifð kynkvíslar Assers sona, eftir ættum þeirra; þessar borgir og þorpin, er að liggja.
Þá kom upp setti hluturinn; það var hlutur Naftalí sona, Naftalí sona eftir ættum þeirra.
Og landamerki þeirra lágu frá Helef, frá eikunum hjá Zaananním, Adamí-Nekeb og Jabneel alt til Lakkúm og alla leið að Jórdan.
Þaðan gengu landamærin í vestur til Asnót-Tabor, þaðan út til Húkkók, náðu til Sebúlons að sunnanverðu, til Assers að vestanverðu og til Júda við Jórdan gegnt upprás sólar.
Og víggirtar borgir voru þar: Zíddím, Zer, Hammat, Rakkat, Kinneret,
Adama, Rama, Hazór,
Kedes, Edrei, En-Hazór,
Jirón, Migdal-El, Horem, Bet-Anat og Bet-Semes — nítján borgir og þorpin, er að liggja.
Þetta var arfleifð kynkvíslar Naftalí sona eftir ættum þeirra, borgirnar og þorpin, er að liggja.
Loks kom upp sjöundi hluturinn og var það hlutur kynkvíslar Dans sona, eftir ættum þeirra.
Og landamerkin að arfleifð þeirra Voru: Zorea, Estaól, Ír-Semes,
Saalabbín, Ajalon, Jitla,
Elön, TimnaL Ekron,
Elteke, Gibbetón, Baalat,
Jehúd, Bene-Berak, Gat-Rimmon,
Me-Jarkón og Rakkon, ásamt landinu gegnt Jafó.
Og land Dans sona gekk undan þeim. Þá fóru Dans synir og herjuðu á Lesem, unnu hana og tóku hana herskildi, slógu síðan eign sinni á hana og settust þar að, og nefndu hana Dan eftir nafni Dans, föður þeirra.
Þetta var arfleifð kynkvíslar Dans sona eftir ættum þeirra: þessar borgir og þorpin, er að liggja.
Og er Ísraelsmenn höfðu skift landinu öllu til yztu ummerkja, gáfu þeir Jósúa Núnssyni óðal meðal sín.
Eftir boði Drottins gáfu þeir honum borg þá, er hann sjálfur kaus, en það var Timnat-Sera í Efraím - fjöllum. Hann bygði upp borgina og bjó þar síðan.
Þessar voru arfleifðirnar, er þeir Eleasar prestur, Jósúa Núnsson og ætthöfðingjar kynkvísla Ísraelsmanna úthlutuðu með hlutkesti á Síló frammi fyrir Drottni, við dyr samfundatjaldsins. Höfðu þeir nú lokið því að skifta landinu.