Og er hann gekk fram hjá, sá hann mann, sem var blindur frá fæðingu.
Og lærisveinar hans spurðu hann og sögðu: Rabbí, hvor hefir syndgað, þessi maður eða foreldrar hans, að hann skyldi fæðast blindur?
Jesús svaraði: Hvorki syndgaði hann né foreldrar hans, heldur er það til þess, að Guðs verk verði opinber á honum.
Oss ber að vinna verk þess er sendi mig, meðan dagur er; það kemur nótt, þegar enginn getur unnið.
Meðan eg er í heiminum, er eg heimsins ljós.
Þá er hann hafði þetta sagt, hrækti hann á jörðina, gjörði leðju úr hrákanum og reið leðjunni á augu hans.
Og hann sagði við hann: Far þú og þvo þér í Sílóam-laug, — sem er útlagt: sendur —; fór hann þá burt og þvoði sér og kom aftur sjáandi.
Þá sögðu nágrannarnir og þeir, sem höfðu séð hann áður, því hann var ölmusumaður: Er það ekki sá, sem setið hefir og beiðst ölmusu?
Nokkurir sögðu: Það er hann. Aðrir sögðu: Nei, en hann er líkur honum. Sjálfur sagði hann: Eg er sá hinn sami.
Þeir sögðu þá við hann: Hvernig opnuðust þá augu þín?
Hann svaraði: Maðurinn, sem heitir Jesús, gjörði leðju og reið á augu mín og sagði við mig: Far þú til Sílóam og þvo þér. En er eg nú fór og þvoði mér, fékk eg sjónina.
Og þeir sögðu við hann: Hvar er hann? Hann segir: Eg veit það ekki.
Þeir færa nú manninn, sem áður var blindur, til Faríseanna;
en hvíldardagur var þann dag, er Jesús bjó til leðjuna og lauk upp augum hans.
Nú spurðu líka Farísearnir hann aftur, hvernig hann hefði fengið sjónina; en hann sagði við þá: Hann lagði leðju á augu mín, og eg þvoði mér, og nú er eg sjáandi.
Þá sögðu nokkrir af Faríseunum: Ekki er maður þessi frá Guði, fyrst hann heldur ekki hvíldardaginn. En aðrir sögðu: Hvernig getur syndugur maður gjört slíkar jarteinir? Og ágreiningur var með þeim.
Þeir segja þá aftur við hinn blinda: Hvað segir þú um hann, þar sem hann lauk upp augum þínum? En hann sagði: Hann er spámaður.
En Gyðingarnir trúðu því þá ekki um hann, að hann hefði verið blindur og væri orðinn sjáandi, fyr en þeir kölluðu á foreldra mannsins, sem var orðinn sjáandi,
og spurðu þau og sögðu: Er þetta sonur ykkar, sem þið segið, að hafi verið fæddur blindur? Hvernig er hann þá nú orðinn sjáandi?
Foreldrar hans svöruðu og sögðu: Við vitum, að hann er sonur okkar, og að hann fæddist blindur.
En hvernig hann nú er orðinn sjáandi, vitum við ekki, eða hver hefir lokið upp augum hans, það vitum við ekki. Spyrjið hann sjálfan; hann hefir aldurinn; hann getur sjálfur talað fyrir sig.
Þetta sögðu foreldrar hans, vegna þess að þau óttuðust Gyðingana, af því að nú höfðu Gyðingarnir komið sér saman um, að ef nokkur maður játaði, að hann væri Kristur, skyldi hann samkundurækur.
Þess vegna sögðu foreldrar hans: Hann hefir aldurinn, spyrjið hann sjálfan.
Þeir kölluðu þá í annað sinn á manninn, sem hafði verið blindur, og sögðu við hann: Gef þú Guði dýrðina; vér vitum, að maður þessi er syndari.
Þá svaraði hann: Hvort hann er syndari, veit eg ekki; eitt veit eg, að eg, sem var blindur, er nú sjáandi.
Þeir sögðu þá við hann: Hvað gjörði hann við þig? Hvernig lauk hann upp augum þínum?
Hann svaraði þeim: Eg hefi þegar sagt yður það, og þér hlustuðuð ekki á það; hvers vegna viljið þér heyra það aftur? Hvort viljið þér líka verða lærisveinar hans?
Og þeir atyrtu hann og sögðu: Þú ert lærisveinn hans, en vér erum lærisveinar Móse.
Vér vitum, að Guð hefir talað við Móse, en um þennan mann vitum vér ekki, hvaðan hann er.
Maðurinn svaraði og sagði við þá: Þá er þetta þó undarlegt, að þér vitið ekki, hvaðan hann er, og hann lauk upp augum mínum.
Vér vitum, að Guð heyrir ekki syndara, en ef einhver er guðrækinn og gjörir vilja hans, þann mann heyrir hann.
Aldrei hefir það heyrst, að nokkur hafi opnað augu þess, er var fæddur blindur.
Væri þessi maður ekki frá Guði, þá gæti hann ekkert gjört.
Þeir svöruðu og sögðu við hann: Allur ert þú í syndum fæddur, og þú ert að kenna oss! Og þeir ráku hann út.
Jesús frétti, að þeir hefðu rekið hann út, og er hann fann hann, sagði hann: Trúir þú á Guðs son?
Hann svaraði og sagði: Hver er sá, herra, að eg geti trúað á hann?
Jesús sagði við hann: Bæði hefir þú séð hann og hann er sá sem við þig talar.
En hann sagði: Eg trúi, herra! og hann féll fram fyrir honum.
Og Jesús sagði: Til dóms er eg kominn í þennan heim, til þess að þeir sem ekki sjá, verði sjáandi, og þeir sem sjáandi eru, verði blindir.
Þetta heyrðu þeir af Faríseunum, sem hjá honum voru, og sögðu við hann: Hvort erum vér þá líka blindir?
Jesús sagði við þá: Ef þér væruð blindir, hefðuð þér ekki synd, en nú segið þér: Vér erum sjáandi. Synd yðar helst við.