Jobsbók 9Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 9

Þá svaraði Job og sagði:

Vissulega, eg veit að það er svo, og hvernig ætti maðurinn að hafa rétt fyrir sér gagnvart Guði?

Þóknist honum að deila við hann, getur hann ekki svarað einni spurning af þúsund.

Vitur í hjarta og mátkur að afli — hver þrjózkaðist gegn honum og sakaði eigi?

Hann sem flytur fjöll, svo að þau vita ekki af, hann sem kollvarpar þeim í reiði sinni;

éhann sem hrærir jörðina úr stað, svo að stoðir hennar leika á reiðiskjálfi;

hann sem býður sólinni, og hún rennur ekki upp, og setur innsigli fyrir stjörnurnar;

hann sem þenur út himininn aleinn, og gengur á háöldum sjávarins;

hann sem skóp Vagnstirnið og Óríon, Sjöstjörnuna og forðabúr suðursins;

hann sem gjörir mikla hluti og órannsakanlega og dásemdarverk, er eigi verða talin.

Sjá, hann gengur fram hjá mér, en eg sé hann ekki, hann strýkst fram hjá, en eg verð hans ekki var.

Þegar hann þrífur til, hver vill þá aftra honum, hver vill segja við hann: Hvað gjörir þú?

Guð heldur ekki aftur reiði sinni, bandamenn hafdrekans beygðu sig undir hann.

Hversu miklu síður mundi eg þá geta svarað honum, geta valið orð mín gagnvart honum,

sem ekki mætti svara, þótt eg hefði rétt fyrir mér, heldur verð að beiðast miskunnar af dómara mínum.

Þótt eg kallaði, og hann svaraði mér, þá mundi eg ekki trúa, að hann hlustaði á mig.

Miklu fremur mundi hann hvæsa á mig í stormviðri og margfalda sár mín án saka,

aldrei leyfa mér að draga andann, heldur metta mig beiskri kvöl.

Sé um kraft hins sterka að ræða: »Eg er til!« eða sé um rétt að ræða: »Hver vill stefna mér?«

Þótt eg hefði rétt fyrir mér, þá mundi munnur minn sakfella mig, þótt eg væri saklaus, mundi hann koma á mig sektinni.

Saklaus er eg; eg hirði ekkert um líf mitt, eg virði að veltugi tilveru mína!

Mér stendur á sama um það; fyrir því segi eg: hann tortímir jafnt saklausum sem óguðlegum.

Þegar svipan deyðir snögglega, þá gjörir hann gys að örvænting hinna saklausu.

Jörðin er gefin í vald hinna óguðlegu, hann byrgir fyrir andlitið á dómendum hennar. Sé það ekki svo — hver þá?

Og dagar mínir voru skjótari en hraðboði, liðu svo hjá, að þeir litu enga hamingju;

þeir brunuðu áfram eins og reyrbátar, eins og örn, sem steypir sér niður á æti.

Ef eg segi: Eg ætla að gleyma volæði mínu, eg ætla að breyta andlitssvip mínum og vera kátur,

þá hryllir mig við öllum þjáningum mínum, — eg veit þú sýknar mig ekki.

Es á nú að vera sekur, hví skyldi eg þá vera að mæðast til ónýtis?

Þótt eg þvægi mér úr snjó og hreinsaði hendur mínar í lút,

þá mundir þú dýfa mér ofan í forarvilpu, svo að klæðum mínum byði við mér.

Því að hann er ekki maður eins og eg, að eg geti svarað honum, að við getum gengið saman fyrir rétt.

Enginn er sá, er úr skeri okkar í milli, er lagt geti hönd sína á okkur báða.

Hann taki vönd sinn frá mér og láti ekki skelfing sína hræða mig,

þá vil eg tala og eigi óttast hann, því að svo er mér eigi farið hið innra.