Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Mér býður við lífi mínu, eg ætla því að gefa kveinstöfum mínum lausan tauminn, ætla að tala í sálarkvöl minni.
Eg segi við Guð: Sakfell mig ekki! lát mig vita, hvers vegna þú deilir við mig.
Er það ávinningur fyrir þig, að þú undirokar, að þú hafnar verki handa þinna, en lætur ljós skína yfir ráðagerð hinna óguðlegu?
Hefir þú holdleg augu, eða sér þú eins og menn sjá?
Eru dagar þínir eins og dagar mannanna, eða eru ár þín eins og mannsæfi,
er þú leitar að misgjörð minni og grenslast eftir synd minni,
þótt þú vitir, að eg er ekki sekur, og að enginn frelsar af þinni hendi?
Hendur þínar hafa skapað mig og myndað mig, allan í krók og kring, og samt ætlar þú að tortíma mér?
Minstu þó þess, að þú myndaðir mig sem leir, og nú vilt þú aftur gjöra mig að dufti?
Hefir þú ekki helt mér sem mjólk og hleypt mig sem ost?
Hörundi og holdi klæddir þú mig, og ófst mig saman úr beinum og sínum.
Líf og náð veittir þú mér, og umsjá þín varðveitti andardrátt minn.
En þetta falst þú í hjarta þínu — eg veit þú hafðir slíkt í hyggju —:
tí ef eg syndgaði, þá ætlaðir þú að hafa gætur á mér og eigi sýkna mig af misgjörð minni.
Væri eg sekur, þá vei mér! Og þótt eg væri réttlátur, þá mundi eg samt ekki bera höfuð mitt hátt, mettur af smán og drykkjaður eymd.
Og ef það lyfti sér, þá mundir þú elta mig sem ljón, og ávalt að nýju sýna á mér undramátt þinn;
þú mundir leiða fram ný vitni á móti mér og herða á gremju þinni gegn mér, senda nýjan og nýjan kvalaher á hendur mér.
Hvers vegna útleiddir þú mig þá af móðurlifi? Eg hefði átt að deyja áður en nokkurt auga leit mig!
Eg hefði átt að verða eins og eg hefði aldrei verið til: frá móðurkviði borinn til grafar!
Eru ekki dagar mínir fáir? Hætti hann því, víki hann frá mér, svo að eg megi gleðjast lítið eitt,
áður en eg fer burt og kem aldrei aftur, í land myrkurs og niðdimmu,
land svartamyrkurs sem um hánótt, niðdimmu og skipuleysis, svo að birtan sjálf er sem svartnætti.