Jobsbók 11Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 11

Já svaraði Zófar frá Naama og sagði:

Á ekki að svara orðagjálfriiiu, og á málskrafsmaðurinn að hafa rétt fyrir sér?

Ættu stóryrði þín að koma mönnum til að þegja? og ætlir þú að spotta og enginn sneypa ig,

þar sem þú segir: kenning mín er rétt og eg var hreinn í augum þínum?

En — ó að Guð vildi tala og ljúka upp vörum sínum í móti þér

og kunngjöra þér leyndardóma spekinnar, að í þeim felast margföld hyggindi, þá mundir þú kannast við, að Guð hegnir ekki til fulls misgjörð þinni.

Getur þú náð til botns í Guði eða komist til yztu takmarka hins Almátka?

Himinhá er speki hans — hvað fær þú gjört? dýpri en undirheimar — hvað fær þú vitað?

Hún er lengri en jörðin að víðáttu og breiðari en hafið.

Ef hann ryðst fram og hneppir í varðhald og stefnir dómþing — hver aftrar honum?

Því að hann þekkir varmennin og sér ranglætið, þótt hann sé ekki að veita því athygli.

Og óvitur maður verður hygginn og skógarösnu-folald endurfæðist sem maður.

Ef þú undirbýr hjarta þitt og útréttir hendur þínar til hans,

— ef misgjörð er í hendi þinni, þá fjarlæg hana, og lát eigi órétt búa í tjöldum þínum —

já, þá munt þú flekklaus hefja höfuð þitt, munt standa fastur og eigi þurfa að óttast.

Já, þá munt þú gleyma mæðu þinni; þú munt minnast hennar sem vatns, er runnið er fram hjá.

Og lífið mun renna upp bjartara en hádegið; þótt dimmi, þá mun það verða sem morgunn.

Og þú munt vera öruggur, því að enn er von, og skygnist þú um, getur þú lagst óhultur til hvíldar;

þú hvílist, og enginn hræðir þig, og margir munu reyna að koma sér í mjúkinn hjá þér.

En augu hinna óguðlegu daprast; fyrir þá er fokið í öll skjól og þeirra eina von er — að gefa upp andann.