Gamla testamentiðSpeki og ljóð
fyrir þá er fokið í öll skjól og þeirra eina von er — að gefa upp andann. Þá svaraði Job og sagði:
Já, vissulega, miklir menn eruð þér og með yður mun spekin deyja út!
Eg hefi og vit, eins og þér, ekki stend eg yður að baki, og hver er sá, er eigi viti slíkt!
Athlægi vinar síns — það má eg vera, eg sem kallaði til Guðs, og hann svaraði mér, eg athlægi, hinn réttláti, ráðvandi!
Ögæfuna á að fyrirlíta — hugsar hinn öruggi — hrinda þeim, sem valtir eru á fótum.
Tjöld spillvirkjanna standa ósködduð af rt og þeir lifa áhyggjulausir, sem egna Guð til reiði, sá sem ber guð sinn í hendi sér.
En spyr þú skepnurnar, og þær munu kenna þér, fugla loftsins, og þeir munu fræða þig,
Seða villidýrin, og þau munu kenna þér, og fiskar hafsins munu segja þér það.
Hver þekti ekki á öllu þessu, að hönd Drottins hefir gjört þetta,
hann, sem hefir sál alls hins lifanda í hendi sér og anda sérhvers mannslíkama?
Prófar eyrað ekki orðin, eins og gómurinn smakkar matinn?
Hjá öldruðum mönnum er speki og langir lífdagar veita hyggindi.
Hjá Honum er speki og máttur, hans eru ráð og hyggindi.
Þegar hann rífur niður, þá verður eigi bygt upp aftur, þegar hann setur einhvern í fangelsi, þá verður ekki lokið upp.
Þegar hann stíflar vötnin, þá þorna þau upp, þegar hann hleypir þeim, þá umturna þau jörðinni.
Hjá honum er máttur og vizka; á valdi hans er sá, er villist, og sá, er í villu leiðir.
Hann leiðir ráðherra burt nakta og gjörir dómara að fíflum.
Hann leysir fjötra konunganna og bindur reipi um lendar sjálfra þeirra.
Hann leiðir presta burt nakta og steypir þeim, sem sitja fastir í sessi.
Hann rænir reynda menn málinu og sviftir öldungana dómgreind.
Hann hellir fyrirlitning yfir tignarmennin og gjörir slakt belti hinna sterku.
Hann grefur hið hulda fram úr myrkrinu og dregur niðdimmuna fram í birtuna.
Hann veitir þjóðunum vöxt og eyðir þeim, útbreiðir þjóðirnar og leiðir þær burt.
Hann firrir þjóðhöfðingja landsins viti og lætur þá villast um veglaus öræfi.
Þeir fálma í ljóslausu myrkri, og hann lætur þá skjögra eins og drukkinn mann.