Jobsbók 13Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 13

Sjá, alt þetta hefir auga mitt séð —— og eyra mitt heyrt og sett það á sig.

Það sem þér vitið, það veit eg líka, ekki stend eg yður að baki.

En eg vil tala til hins Almátka og mig langar til að þreyta málsókn við Guð.

Því að sannlega samtvinnið þér lygar og eruð gagnslausir gutlarar allir saman.

að þér vilduð steinþegja, þá mætti meta yður það til mannvits.

Heyrið átölur mínar og hlustið á ásakanir vara minna.

Viljið þér mæla það, sem rangt er, Guði tl varnar? og honum til varnar mæla svik?

Viljið þér draga taum hans eða viljið þér taka málstað Guðs?

Ætli það fari vel, þegar hann rannsakar yður, eða ætlið þér að leika á hann, eins og leikið er á menn?

Nei, hegna, hegna mun hann yður, ef þér eruð hlutdrægir í leyni.

Hátign hans mun skelfa yður og ótti hans mun falla yfir yður.

Spakmæli yðar eru ösku-orðskviðir, vígi yðar eru leirvígi.

Þegið og látið mig í friði, þá mun eg mæla, og komi yfir mig hvað sem vill.

Eg ætla að bera hold mitt milli tannanna og leggja sál mína í lófa minn.

Sjá, hann mun deyða mig — eg hið hans; aðeins vil eg verja hreytni mína fyrir augliti hans.

Það skal og verða mér til sigurs, því að guðlaus maður kemur ekki fyrir auglit hans.

Hlýðið því gaumgæfilega á ræðu mína, og vörn mín gangi yður Í eyru.

Sjá, eg hefi undirbúið málið, eg veit, að eg verð dæmdur sýkn.

Hver er sá, er deila vilji við mig? þá skyldi eg þegja og gefa upp andann.

En tvent mátt þú ekki við mig gjöra, þá skal eg ekki fela mig fyrir augliti þínu.

hönd þína burt frá mér og lát ekki skelfing þína hræða mig;

kalla því næst, og mun eg svara, eða eg skal tala, og veit þú mér andsvör í móti.

Hversu margar eru þá misgjörðir mínar og syndir? Kunngjör mér afbrot mín og synd mína!

Hvers vegna byrgir þú auglit þitt og ætlar, að eg sé óvinur þinn?

Ætlar þú að skelfa vindþyrlað laufblað og ofsækja þurt hálmstrá,

ep þú dæmir mér beiskar kvalir og lætur mig erfa misgjörðir æsku minnar?

er þú setur fætur mína í stokk og aðgætir alla vegu mína og markar hring kring um iljar mínar?

Og þessi maður dettur þó sundur eins og maðksmoginn viður, eins og mölétið fat.