Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Maðurinn, af konu fæddur, -— lifir stutta stund og mettast órósemi;
hann rennur upp og fölnar, eins og blóm, flýr burt eins og skuggi og hefir ekkert viðnám.
yfir slíkum heldur þú opnum augum þínum og dregur mig fyrir dóm hjá þér!
Hvernig ætti hreinn að koma af óhreinum! Ekki einn!
Ef dagar hans eru ákvarðaðir, tala mánaða hans tiltekin hjá þér, hafir þú ákveðið takmark hans, er hann fær eigi yfir komist,
þá lít þú af honum, til þess að hann fái hvíld, svo að hann megi fagna yfir degi sínum, eins og daglaunamaður.
Því að tréð hefir von; - sé það höggvið, þá skýtur það nýjum frjóðöngum, og teinungurinn kemur áreiðanlega upp.
Jafnvel þótt rót þess eldist í jörðinni og stofn þess deyi í moldinni,
þá brumar það við ilminn af vatninu, og á það koma greinar, eins og unga hríslu.
En deyi maðurinn, þá liggur hann flatur, og gefi manneskjan upp andann — hvar er hún þá?
Eins og vatnið hverfur úr stöðuvatninu og fljótið grynnist og þornar upp,
þannig leyst maðurinn til hvíldar og rís eigi aftur á fætur; þar til er himnarnir farast, rumska þeir ekki og eru ekki vaktir af svefninum.
Ó að þú vildir geyma mig í dánarheimum, fela mig, unz reiði þinni linnir, setja mér tímatakmark og síðan minnast mín!
Þegar maðurinn deyr, lifnar hann þá aftur? þá skyldi eg þreyja alla daga herþjónustu minnar, þar til er lausnartíð mín kæmi.
Þú mundir kalla, og eg — eg mundi svara þér; þú mundir þrá verk handa þinna.
Því að þá mundir þú telja spor mín, eigi vaka yfir synd minni.
Afbrot mín lægju innsigluð í bögli, og á misgjörð mína drægir þú hvítan til.
En eins og fjallið molnar sundur, er það hrynur, og kletturinn færist úr stað sínum,
Deins og vatnið holar steinana og vatnsflóðin skola burt jarðarleirnum, svo hefir þú gjört von mannanna að engu.
Þú þér hann ofurliði að eilífu, og hann fer burt, - þú afmyndar ásjónu hans og rekur hann á brott.
Komist börn hans til virðingar, þá veit hann það ekki, séu þau lítilsvirt, verður hann þess ekki var.
Aðeins kennir líkami hans eigin sársauka og sál hans hryggist yfir sjálfum honum.