Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Þá svaraði Elífas frá Teman og sagði:
Skyldi vitur maður svara með vindkendri vizku og fylla brjóst sitt austanstormi
sanna mál sitt með orðum, sem ekkert gagna, og ræðum, sem engu fá áorkað?
Auk þess rífur þú niður guðsóttann og veikir lotninguna, sem Guði ber.
Því að misgjörð þín leggur þér orð í munn og þú vetur þér lævísra tungu.
Þinn eigin munnur sakfellir þig, ekki eg, og varir þínar vitna í gegn þér.
Fæddist þú fyrstur manna og ert þú í heiminn borinn fyr en hæðirnar?
Hefir þú. hlustað á í ráði Guðs og hrifsað til þín spekina?
Hvað veizt þú, er vér eigi vissum, hvað skilur þú, er oss væri ókunnugt?
stíl eru og öldungar, gráhærðir menn, vor á meðal, auðgarr að æfidögum en faðir þinn.
Er huggun Guðs þér lítils virði og orðið, sem tók vægt á þér?
Hvers vegna hrífur gremjan þig og hví ranghvolfast augu þín,
er þú snýr reiði þinni gegn Guði og lætur þér slík orð um munn fara?
Hvað er maðurinn, að hann geti verið hreinn, og sá verið réttlátur, sem af konu er fæddur?
Sjá, sínum heilögu treystir Hann ekki, og himininn er ekki hreinn í augum hans,
hvað þá hinn andstyggilegi, spilti — maður, sem drekkur ranglætið eins og vatn.
Eg vil fræða þig, Heyr þú mig, - og það sem eg hefi séð, frá því vil eg segja,
því er vitringarnir kunngjörðu — og duldu ekki -— svo sem arfsögn frá feðrum sínum.
Þeim einum var landið gefið, og enginn útlendingur hafði enn farið um meðal þeirra.
æfi sína kvelst hinn óguðlegi og öll þau ár, sem geymd eru ofbeldismanninum.
Skelfingarhljóð óma í eyrum honum; á friðartímum ræðst eyðandinn á hann.
Hann trúir því ekki, að hann komist út úr myrkrinu, og hann er kjörinn undir sverðið.
Hann reikar um, til þess að leita sér brauðs — hvar er það? — hann veit að ógæfudagurinn bíður búinn við hlið honum.
Neyð og angist skelfa hann; hún ber hann ofurliði, eins og konungur, sem búinn er til atlögu,
af því að hann útrétti hönd sína gegn Guði og reis þrjózkur í móti hinum Almátka.
Hann rann í móti honum hnakkakerlur, með hinum þéttu bungum skjalda sinna,
af því að hann þakti andlit sitt spiki og safnaði fitu á lendar sér,
settist að í eyddum borgum, í húsum, er enginn átti í að búa, og ákveðið var að verða skyldu að rústum.
Hann verður ekki ríkur og eigur hans haldast ekki við og kornöx hans svigna ekki til jarðar.
Hann kemst eigi undan myrkrinu; frjóanga hans mun loginn svíða, og fyrir reiðiblæstri hans ferst hann.
Hann reiði sig ekki á hégóma; hann villist, því að hégómi verður umbun hans.
Það rætist fyrir skapadægur hans, og pálmagrein hans grænkar eigi.
Hann hristir af sér súr berin, eins og vínviðurinn, og varpar af sér blómunum, eins og olíutréð.
Því að sveit hinna óguðlegu er ófrjó og eldur eyðir tjöldum mútugjafanna.
Þeir ganga þungaðir með mæðu og ala ógæfu, og kviður þeirra undirbýr svik.