Jobsbók 8Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 8

Því að nú leyst eg til hvíldar í moldu, og leitir þú mín, þá er eg eigi framar til. R

Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði: - Hversu lengi ætlar þú slíkt að mæla, og orðin í munni þíjium að vera hvass vindur?

Hallar þá Guð réttinum, eða hallar hinn Almátki réttlætinu?

Hafi börn þín syndgað móti honum, þá hefir hann selt þau misgjörð þeirra á vald.

En ef þú leitar Guðs og biður hinn Almátka miskunnar —

ef þú ert hreinn og einlægur, já, þá mun hann þegar vakna til að sinna þér og endurreisa bústað þíns réttlætis.

Þá mun þinn fyrri hagur virðast lítilfjörlegur, en framtíðarhagur þinn vaxa stórum.

Því að — spyr þú hina fyrri kynslóð og gef þú gaum að því, er feður þeirra hafa útgruridað.

Því að vér erum síðan í gær og vitum ekkert, því að skuggi eru dagar vorir á jörðunni.

En þeir munu fræða þig, segja þér það og bera fram orð úr sjóði hjarta síns.

ySprettur pappírssefið þar sem engin mýri er? vex störin nema í vatni?

Enn stendur hún í blóma og verður eigi slegin, en hún skrælnar fyr en nokkurt annað gras.

Svo fer fyrir öllum þeim, sem gleyma Guði, og von hins guðlausa verður að engu;

athvarf hans brestur sundur og köngullóarvefur er það, sem hann treystir.

Hann styðst við hús sitt, en það stendur ekki; hann heldur sér fast í það, en það stenzt ekki.

Grænn stendur hann í sólskininu og frjókvistir hans breiða sig út yfir garð hans.

Rætur hans vefjast utan um grjóthrúgu, hann læsir sig milli steinanna.

En ef Hann upprætir hann frá stað hans, þá afneitar staðurinn honum og segir: »Eg hefi aldrei séð þig«!

Sjá, þetta er gleði vegar hans, og aðrir spretta upp úr moldinni.

Nei, Guð hafnar ekki hinum ráðvanda og heldur ekki í hönd illgjörðamanna.

Enn mun hann fylla munn þinn hlátri og varir þínar fagnaðarópi.

Þeir, sem hata þig, munu skömminni klæðast, og tjald hinna óguðlegu mun horfið vera.