Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Þá svaraði Drottinn Job úr stormviðrinu og sagði:
Hver er sá, sem myrkvar ráðsályktun Guðs með óskynsamlegum orðum?
Gyrð lendar þínar eins og maður; þá mun eg spyrja þig, og þú skalt fræða mig.
Hvar varst þú, þegar eg grundvallaði jörðina? Seg fram, ef þú hefir þekkingu til.
Hver ákvað mál hennar — þú veizt það! — eða hver þandi mælivaðinn yfir hana?
Á hvað var stólpum hennar hleypt niður eða hver lagði hornstein hennar,
þá er morgunstjörnurnar sungu gleðisöng allar saman og allir guðs-synir fögnuðu?
Og hver byrgði hafið inni með hurðum, þá er það brauzt fram, gekk út af móðurkviði,
þá er eg fékk því skýin að klæðnaði og svartaþyknið að reifum?
þá er eg braut því takmörk og setti slagbranda fyrir og hurðir
Og mælti: Hingað skaltu komast og ekki lengra, hér skulu þínar hreyknu hrannir brotna!
Hefir þú nokkurn tíma á æfi þinni boðið út morgninum, vísað morgunroðanum á stað hans,
til þess að hann gripi í skaut jarðarinnar og hinir óguðlegu yrðu hristir af henni?
Hún breytist eins og leir undir signeti, og hlutirnir koma fram eins og fat.
Og hinir óguðlegu verða sviftir ljósinu og hinn upplyfti armleggur sundur brotinn.
Hefir þú komið að uppsprettum hafsins og hefir þú gengið á botni undirdjúpsins?
Hafa hlið dauðans opnast fyrir þér, og hefir þú séð hlið svartamyrkursins?
Hefir þú litið yfir breidd jarðarinnar? Seg fram, fyrst þú veizt það alt saman.
Hvar er vegurinn þangað sem ljósið býr, og myrkrið — hvar á það heima,
svo að þú gætir flutt það heim í landareign þess og þektir göturnar heim að húsi þess?
Þú veizt það; því að þá fæddist þú og tala daga þinna er há!
Hefir þú komið til forðabúrs snjávarins og hefir þú séð forðabúr haglsins,
sem eg hefi geymt til tíma neyðarinnar, til orustu- og ófriðardagsins?
Hvar er vegurinn þangað sem ljósið skiftist og austanvindurinn dreifist yfir jörðina?
Hver hefir búið til rennu fyrir steypiregnið og veg fyrir eldingarnar,
til þess að láta rigna yfir mannautt land, yfir eyðimörkina, þar sem enginn býr,
til þess að metta auðnir og eyðilönd og láta grængresi spretta?
Á regnið föður eða hver hefir getið daggardropana?
Af hverrar kviði er ísinn útgenginn, og hrím himinsins — hver fæddi það?
Vötnin þéttast eins og steinn og yfirborð fljótsins verður samfrosta.
Getur þú þrengt sjöstirnis-böndin, eða fær þú leyst fjötra Orlons?
Lætur þú stjörnumerki dýrahringsins koma fram á sínum tíma og leiðir þú Birnuna með húnum hennar?
Þekkir þú lög himinsins eða ákveður þú yfirráð hans yfir jörðunni?
Getur þú lyft raust þinni upp tl skýsins, svo að vatnaflaumurinn hylji þig?
Getur þú sent eldingarnar, svo að þær fari og segi við þig: Hér erum vér!
Hver hefir lagt vísdóm í hin dimmu ský eða hver hefir gefið loftsjónunum vit?
Hver telur skýin með vizku, og vatnsílát himinsins — hver hellir úr þeim,
þegar moldin rennur saman í kökk og hnausarnir loða hver við annan?
Veiðir þú bráðina fyrir ljónynjuna og seður þú græðgi ungljónanna,
þá er þau kúra í bæli sínu og vaka yfir veiði í þéttum runni?
Hver býr hrafninum fæðu hans, þá er ungar hans hrópa til Guðs, flögra til og frá ætislausir?