Jobsbók 37Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 37

Já, yfir þessu titrar hjarta mitt og hrökkur upp úr stað sínum.

Heyrið, heyrið drunur raddar hans og hvininn, sem út fer af munni hans.

Undir öllum himninum lætur hann hana þjóta og leiftur sitt út á jaðra jarðarinnar.

Á eftir því kemur öskrandi skrugga; hann þrumar með sinni tignarlegu raust, og heldur eldingunum ekki aftur, þá er raust hans lætur til sín heyra.

Guð þrumar undursamlega með raust sinni, — hann sem gjörir mikla hluti, er vér eigi skiljum.

Því að hann segir við snjóinn: Fall þú á jörðina, og eins við hellirigninguna og hennar dynjandi helliskúrir.

Hann innsiglar hönd sérhvers manns, til þess að allir menn viðurkenni verk hans.

Þá fara villidýrin í fylgsni sín og hvílast í bælum sínum.

stormurinn kemur úr forðabúrinu og kuldinn af norðanvindum.

Fyrir andgust Guðs verður ísinn til, og við vötnin eru lögð í læðing.

Hann hleður og skýin vætu, tvístrar leiftur-skýi sínu víðsvegar.

En það snýst í allar áttir, eftir því sem hann leiðir það, til þess að þau framkvæmi alt það, er hann býður þeim, á yfirborði allrar jarðarinnar —

ýmist til hirtingar, ef það er til góðs fyrir jörð hans, eða til blessunar lætur hann það hitta.

Hlýð þú á þetta, Job; stattu kyrr og gef gaum að dásemdum Guðs.

Skilur þú, hvernig Guð felur þeim hlutverk þeirra og lætur ljós skýja sinna skína?

Skilur þú, hvernig skýin svifa, dásemdir hans, sem fullkominn er að vísdómi,

þú, sem fötin hitna á, þá er jörðin mókir.í sunnanmollu?

Þenur þú út með honum heiðhimininn, sem fastur er eins og steyptur spegill?

Kenn oss, hvað vér eigum að segja við hann. Vér megnum ekkert fram að færa fyrir myrkri.

Á að segja honum, að eg ætti að tala? K eða hefir nokkur sagt, að hann óski að verða gjöreyddur?

nú sjá menn að sönnu ekki ljósið, sem skín skært að skýjabaki, en vindurinn þýtur áfram og sópar þeim burt.

Gullið kemur úr norðri, um Guð lykur ógurlegur ljómi.

Vér náum eigi til hins Almátka, til hans, sem er mikill að mætti; en réttinn og hið fulla réttlæti vanrækir hann ekki.

Fyrir því óttast mennirnir hann; hann lítur ekki við neinum sjálfbirgingum.