Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Og Elíhú hélt áfram og sagði:
Haf þolinmæði við mig enn stutta stund, að eg megi fræða þig, því að enn má margt segja Guði til varnar.
Eg ætla að sækja þekking mína langar leiðir og sanna, að skapari minn hafi á réttu að standa.
Því að vissulega fer eg eigi með ósannindi; maður með fullkominni þekking stendur frammi fyrir þér.
Sjá, Guð er voldugur, þó fyrirlítur hann engan, voldugur að andans krafti.
Hann viðheldur ekki lífi hins óguðlega, en veitir hinum voluðu rétt þeirra.
Hann hefir ekki augun af hinum réttláta, og hjá konungum í hásætinu — þar lætur hann þá sitja að eilífu, til þess að þeir séu hátt upp hafnir.
Og þótt þeir verði viðjum reyrðir, veiddir í snörur eymdarinnar,
og hann setur þeim fyrir sjónir gjörðir þeirra og afbrot þeirra, að þeir breyttu drambsamlega,
Og hann opnar eyru þeirra fyrir umvönduninni og segir að þeir skuli snúa sér frá ranglæti,
Hef þeir þá hlýða og þjóna honum, þá eyða þeir dögum sínum í velgengni og árum sínum Í unaði.
En hlýði þeir ekki, þá farast þeir fyrir skotvopnum, gefa upp andann í vanhyggju sinni.
Því að vonzkufullir í hjarta ala þeir með sér reiði, hrópa eigi á hjálp, þegar hann fjötrar þá.
Önd þeirra deyr í æskublóma og líf þeirra eins og hórsveina.
En hann mun frelsa hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni.
Einnig þig ginnir hann út úr gini neyðarinnar, út á víðlendi, þar sem engin þrengsli eru, og það, sem kemur á borð þitt, er full af feiti.
En sért þú fullur af dómi hins óguðlega, þá munu dómur og réttur hremma þig.
Því að: lát eigi reiði ginna þig til spotts og lát eigi stærð lausnargjaldsins tæla þig.
mun hróp þitt koma þér úr nauðunum eða nokkur áreynsla krafta þinna?
Þráðu eigi nóttina, þá er þjóðir sópast burt af stöðvum sínum.
Gæt þín, snú þér eigi að ranglæti, því að það kýs þú heldur en að líða.
Sjá, Guð er háleitur í framkvæmdum máttar síns, hver er slíkur kennari sem hann?
Hver hefir fyrirskipað honum veg hans, og hver dirfist að segja: þú hefir gjört rangt?
Minstu þess, að þú vegsamir verk hans, það er mennirnir syngja um lofkvæði.
Allir menn horfa með fögnuði á það, dauðlegur maðurinn lítur það úr fjarska.
Já, Guð er mikill og vér þekkjum hann ekki, tala ára hans órannsakanleg.
Því að hann dregur upp vatnsdropana og lætur ýra úr þoku sinni,
regnið, sem skýin láta niður streyma,. drjúpa yfir marga menn.
Já, ef nokkur skildi útbreiðslu skýjanna og dunurnar í tjaldi hans!
Sjá, hann breiðir ljós sitt út kring um sig og hylur rætur hafsins.
Því að með því dæmir hann þjóðirnar, með því veitir hann fæðu í ríkum mæli.
Báðar hendurnar hylur hann ljósi og býður því út gegn fjandmanni sínum.
Þruma hans boðar komu hans, hans sem lætur reiði sína geisa gegn ranglætinu.