Jobsbók 39Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 39

Veizt þú tímann, nær steingeiturnar bera? Gefur þú gaum að fæðingarhríðum hindanna?

Telur þú mánuðina, sem þær ganga með, og veizt þú tímann, nær þær bera?

Þær leggjast á knén, fæða kálfa sína, þær losna fljótt við kvalir sínar.

Kálfar þeirra verða sterkir, vaxa í haganum,; fara burt og koma ekki aftur til þeirra.

Hver hefir látið skógarasnann ganga lausan og hver hefir leyst fjötra villiasnans,

sem eg hefi gefið eyðivelli að bústað og saltsléttu að heimkynni?

Hann hlær að hávaða borgarinnar; hann heyrir ekki köll rekstrarmannsins.

Það, sem hann leitar uppi á fjöllunum, er haglendi hans, og öllu því, sem grænt er, sækist hann eftir.

SMun vísundurinn vera fús til að þjóna þér, eða mun hann standa um nætur við statt þinn?

Getur þú bundið vísundinn með bandinu við plógfarið, eða mun hann herfa dalgrundirnar á eftir þér?

Reiðir þú þig á hann, af því að kraftur hans er mikill, og trúir þú honum fyrir arði þínum?

Treystir þú honum til að flytja sáð þitt heim og til að safna því á þreskivöll þinn?

Strúthænan baðar glaðlega vængjunum, en er nokkurt ástríki í þeim vængjum og flugfjöðrum?

Nei, hún fær jörðinni egg sín og lætur þau hitna í moldinni,

Og gleymir að fótur getur brotið þau og dýr merkurinnar troðið þau sundur.

Hún er hörð við unga sína, eins og hún ætti þá ekki; þótt fyrirhöfn hennar sé árangurslaus, þá er hún laus við ótta;

því að Guð synjaði henni um vizku og veitti henni enga hlutdeild í hyggindum.

En þegar hún sveiflar sér í loft upp, þá hlær hún að hestinum og þeim, sem á honum situr.

Gefur þú hestinum styrkleika, klæðir þú makka hans flaksandi faxi?

Lætur þú hann stökkva eins og engisprettu? Fagurlega frýsar hann, en hræðilega!

Hann krafsar upp grundina og kætist af styrkleikanum, hann fer út á móti hertýgjunum.

Hann hlær að hræðslunni og skelfist ekki og hopar ekki fyrir sverðinu.

Á baki hans glamrar í örvamælinum, spjót og lensa leiftra.

Með hávaða og harki hendist hann yfir jörðina, og eigi verður honum haldið, þá er lúðurinn gellur.

Í hvert sinn er lúðurinn gellur, hvíar hann og langar leiðir nasar hann bardagann, þrumurödd fyrirliðanna og herópið.

Er það fyrir þín hyggindi að haukurinn lyftir flugfjöðrunum, breiðir út vængi sína í suðurátt?

Er það eftir þinni skipun að örninn flýgur svo hátt og byggir hreiður sitt hátt uppi?

Á klettunum hefir hann býli og ból, á klettasnösum og fjallatindum.

Þaðan skygnir hann að æti; augu hans sjá langar leiðir.

Og ungar hans svelgja blóð, og hvar sem vegnir menn liggja, þar er hann.