Jobsbók 33Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 33

En heyr þú, Job, ræðu mína og hlýð þú á öll orð mín.

Sjá, eg opna munn minn og tunga mín talar í gómi mínum.

Orð mín eru hjartans hreinskilni, og það, sem varir mínar vita, mæla þær í einlægni.

Andi Guðs hefir skapað mig og andblástur hins Almátka gefur mér líf.

Ef þú getur, þá svara þú mér, bú þig út í móti mér og gakk fram.

Sjá, eg stend eins og þú gagnvart Guði; eg er og myndaður af leiri.

Sjá, hræðsla við mig þarf eigi að skelfa þig og þungi minn eigi þrýsta þér niður.

En þú hefir sagt í eyru mér, og eg heyrði hljóm orðanna:

»Hreinn er eg, laus við afbrot; saklaus er eg, og hjá mér er engin misgjörð.

Sjá, hann reynir að finna tilefni til fjandskapar við mig og ætlar að eg sé óvinur hans.

Hann setur fætur mína í stokk og aðgætir alla vegu mína«.

Sjá, í þessu hefir þú rangt fyrir þér, svara eg þér, því að Guð er meiri en maður.

Hví hefir þú þráttað við hann, að hann svaraði engu öllum orðum þínum?

Því að vissulega talar Guð einu sinni, já, tvisvar, en menn gefa því ekki gaum.

Í draumi, Í nætursýn, þá er þungur svefnhöfgi er fallinn yfir mennina, í blundi á hvílubeði,

þá opnar hann eyru mannanna og innsiglar viðvörunina til þeirra,

til þess að fá manninn tl þess að láta af gjörðum sínum og forða manninum við drambsemi.

Hann hlífir sálu hans við gröfinni og lífi hans frá því að farast fyrir skotvopni.

Hann er og agaður með kvölum á sæng sinni, og stríðið geisar stöðuglega í beinum hans.

Þá vekur lífshvötin óbeit hjá honum á brauðinu í og sál hans á uppáhaldsfæðunni.

Hold hans eyðist og verður óásjálegt á og beinin, sem sáust ekki áður, verða ber,

svo að sál hans nálgast gröfina og líf hans engla dauðans.

Sé þá þar fyrir hann árnaðarengill, einn af þúsund, til þess að boða manninum skyldu hans,

miskunni hann sig yfir hann og segi: »Endurleys hann og lát hann eigi stíga niður í gröfina; eg hefi fengið lausnargjaldið«,

þá svellur hold hans af æskuþrótti, hann snýr aftur til æskudaga sinna.

Hann biður til Guðs, og Guð miskunnar honum, lætur hann líta auglit sitt með fögnuði og veitir manninum aftur réttlæti hans.

Hann syngur frammi fyrir mönnum og segir: »Eg hafði syndgað og gjört hið beina bogið, og þó var mér ekki goldið líku líkt.

Hann hefir leyst sálu mína frá því að fara ofan í gröfina, og líf mitt gleður sig við ljósið.

Sjá, alt þetta gjörir Guð tvisvar eða þrisvar við manninn,

fj þess að hrifa sál hans frá gröfinni, til þess að lífsins ljós megi leika um hann.

Hlýð á, Job, heyr þú mig; ver þú hljóður og lát mig tala.

Hafir þú eitthvað að segja, þá svara mér; tala þú, því að gjarnan vildi eg, að þú reyndist réttlátur.

Ef svo er eigi, þá heyr þú mig; ver hljóður, að eg megi kenna þér speki.