Jobsbók 34Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 34

Og Elíhú tók aftur til máls og sagði:

Heyrið, þér vitrir menn, orð mín, og þér fróðir menn, hlustið á mig.

Því að eyrað prófar orðin, eins og gómurinn smakkar matinn.

Vér skulum rannsaka, hvað rétt er, komast að því hver með öðrum, hvað gott er.

Því að Job hefir sagt: Eg er saklaus, en Guð hefir svift mig rétti mínum;

þótt eg hafi rétt fyrir mér, stend eg sem lygari, banvæn ör hefir hitt mig, þótt eg hafi í engu brotið.

Hvaða maður er eins og Job, sem drekkur guðlast eins og vatn

sog gefur sig í félagsskap við þá, sem út fremja, og í fylgi við óguðlega menn?

Því að hann hefir sagt: »Maðurinn hefir ekkert gagn af því að vera í vinfengi við Guð.

Fyrir því, skynsamir menn, heyrið mig! Fjarri fer því að Guð aðhafist út og hinn Almátki fremji ranglæti.

Nei, hann geldur manninum verk hans og lætur manninum farnast eftir breytni hans.

Já, vissulega fremur Guð ekki ranglæti og hinn Almátki hallar ekki réttinum.

Hver hefir fengið honum jörðina til varðveizlu og hver hefir grundvallað allan heiminn?

Ef hann hugsaði aðeins um sjálfan sig, ef hann drægi til sín anda sinn og andardrátt,

þá mundi alt hold gefa upp andann og maðurinn aftur verða að dufti.

Hafir þú vit, þá heyr þú þetta, hlusta þú á hljóm orða minna.

Getur sá og stjórnað, sem hatar réttinn? Eða vilt þú sekan dæma hinn réttláta, volduga?

Hann, sem segir við konunginn: »Þú varmenni!« við tignarmanninn: »Þú níðingur«?

Sem ekki dregur taum höfðingjanna og gjörir ekki ríkmn hærra undir höfði en fátækum, því að handaverk hans eru þeir allir.

Skyndilega deyja þeir og það um miðja nótt, fólkið verður skelkað og þeir hverfa; og hinn sterki er hrifinn burt, en eigi af manns hendi.

Því að augu hans hvíla yfir vegum hvers manns, og hann sér öll spor hans.

Ekkert það myrkur er til, eða sú niðdimma, að illgjörðamenn geti falið sig þar.

Því að Guð þarf ekki fyrst að gefa manni gaum, til þess að hann komi fyrir dóm hans.

Hann brýtur hina voldugu sundur rannsóknarlaust og setur aðra í þeirra stað.

Þannig þekkir hann verk þeirra og steypir þeim um nótt, og þeir verða marðir sundur,

Sem misgjörðamenn hirtir hann þá, þar sem allir sjá það,

þá, er þess vegna hafa frá honum vikið og vanrækt alla vegu hans,

fénað þeir flyttu kvein hins fátæka bl eyrna honum og hann heyrði kvein hinna voluðu.

Og haldi hann kyrru fyrir, hver vill þá sakfella hann? og byrgi hann auglitið, hver fær þá séð hann? Þó vakir hann yfir þjóð og einstaklingi,

til þess að guðlausir menn skuli ekki drotna, til þess að þeir séu ekki snörur lýðsins.

Því að segir nokkur við Guð: »Eg þoli hegning, og breyti þó ekki illa;

kenn þú mér það, sem eg sé ekki; hafi eg framið ranglæti, skal eg eigi gjöra það framar€?

Á hann að endurgjalda eftir geðþótta þínum, af því að þú hafnar? því að þú átt að velja, en ekki eg. Og seg nú fram það, er þú veizt!

Skynsamir menn munu segja við mig og vitur maður, sem á mig hlýðir:

Job talar ekki hyggilega, og orð hans eru ekki skynsamleg«.

Ó að Job mætti reyndur verða æ að nýju, af því að hann svarar eins og illir menn svara.

Því að hann bætir misgjörð ofan á synd sína; hann klappar saman höndunum framan í oss og heldur langar ræður móti Guði.