Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Ó Og þessir þrír menn hættu að svara Job, því að hann þóttist vera réttlátur.
á upptendraðist reiði Glíhú Barakelssonar Búsíta, af Rams kynstofni. Upptendraðist reiði hans gegn Job, af því að hann taldi sig hafa á réttu að standa gagnvart Guði.
Reiði hans upptendraðist og gegn vinum hans þremur, fyrir það að þeir fundu engin andsvör, til þess að sanna Job, að hann hefði á röngu að standa.
En Elíhú hafði beðið með að mæla til Jobs, því að þeir voru eldri en hann.
En er Elíhú sá, að mennirnir þrír gátu engu svarað, upptendraðist reiði hans.
Þá tók Elíhú Barakelsson Búsíti til máls og sagði: Eg er ungur að aldri, en þér eruð öldungar, þess vegna fyrirvarð eg mig og kom mér eigi að því, — rað kunngjöra yður það, sem eg veit.
Eg hugsaði: Aldurinn tali og árafjöldinn kunngjöri speki!
En — það er andinn í manninum og andblástur hins Almátka, sem gjörir þá vitra.
Elztu mennirnir eru ekki ávalt vitrastir og öldungarnir skynja eigi, hvað réttast er.
Fyrir því segi eg: Hlýð á mig; nú ætla einnig eg að kunngjöra það, sem eg veit.
Sjá, eg beið eftir ræðum yðar, hlustaði á röksemdir yðar, unz þér fynduð orðin, sem við ættu.;
Og að yður gaf eg gaum; en sjá, enginn sannfærði Job, enginn yðar hrakti orð hans.
Segið ekki: »Vér höfum hitt fyrir speki; Guð einn fær sigrað hann, en enginn maður!«
Gegn mér hefir hann ekki sett fram neinar sannanir, og með yðar orðum ætla eg ekki að svara honum.
Þeir eru skelkaðir, svara eigi framar, þeir standa uppi orðlausir.
Og ætti eg að bíða, þar sem þeir þegja, þar sem þeir standa og svara eigi framar?
Eg vil og svara af minni hálfu, eg vil og kunngjöra það, sem eg veit.
Því að eg er fullur af orðum; andinn í brjósti mínu knýr mig.
Sjá, brjóst mitt er sem vín, er ekki fær útrás, ætlar að rifna, eins og nýfyllir belgir.
Eg ætla að tala til þess að létta á mér, ætla að opna varir mínar og svara.
Eg ætla ekki að draga taum neins og eg ætla engan að skjalla.
Því að eg kann ekki að skjalla; ella kynni skapari minn bráðlega að kippa mér burt.